Trúði ekki eigin augum
Eiríkur Tómasson. mbl.is
Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is
„Þegar ég las sératkvæði Jóns Steinars fyrst verð ég að segja þá sögu, eins og er, að ég trúði ekki mínum eigin augum að hæstaréttardómari gæti látið frá sér fara annan eins texta,“ segir Eiríkur Tómasson, prófessor við lagadeild HÍ, í grein í Úlfljóti, tímariti laganema.
Greinin er framhald á deilu hans og Jóns Steinars Gunnlaugssonar um sönnunarmat dómara í sakamálum er varða kynferðisbrot og um túlkun á 47. grein laga um meðferð opinberra mála í því sambandi. Eiríkur skrifaði grein í afmælisrit Úlfljóts þar sem hann gagnrýndi sératkvæði Jóns Steinars í tilteknu sakamáli þar sem Jón Steinar vildi sýkna. Jóns Steinar svaraði henni með grein í Lögréttu.
Að þessu sinni víkur Eiríkur einnig að öðru sératkvæði Jóns Steinars frá því í apríl í fyrra, í máli þar sem tekist var á um aðgengi tveggja fasteignafélaga að afriti af samningi Ríkiskaupa og Reykjavíkurborgar við Portus hf. vegna byggingar ráðstefnu- og tónlistarhússins og vísar Eiríkur til lesturs þess í tilvitnuðum orðum. Eiríkur gagnrýnir niðurstöðu Jóns Steinars og að því loknu segir hann að ekki sé við hæfi að gera því skóna að hæstaréttardómari „kunni ekki skil á viðeigandi ákvæðum laga við úrlausn dómsmáls“. Því verði að ganga út frá því að Jón Steinar hafi [í sératkvæðinu] horft vísvitandi framhjá 3. mgr. 10. gr. upplýsingalaga og það sé „að sjálfsögðu ámælisvert af hálfu dómara við æðsta dómstól þjóðarinnar“.
Alvarleg ásökun hjá Jóni Steinari
Eiríkur segir jafnframt að grein Jóns Steinars haggi ekki við neinu af því sem fram komi í grein sinni. Eiríkur segir að í sératkvæðinu í sakamálinu sé látið að því liggja að þeir dómarar Héraðsdóms og Hæstaréttar, sem voru Jóni Steinari ósammála, hafi gerst sekir um mannréttindabrot. „Verður að telja [það] býsna alvarlega ásökun í þeirra garð af hálfu samstarfsmanns þeirra,“ segir Eiríkur.Í hnotskurn
» Með grein sinni svarar Eiríkur Tómasson grein Jóns Steinars Gunnlaugssonar, „Mál af þessu tagi“, sem birtist í tímaritinu Lögréttu á síðasta ári.» Í greininni segist Jón Steinar hafa tilfinningu fyrir því að verulega hafi verið slakað á kröfum um sönnunarfærslu í kynferðisbrotamálum.
» Í einstökum málum láti nærri að sönnunarbyrði hafi verið snúið á haus og mönnum gert að sanna sakleysi sitt.





































