Vilja allsherjaratkvæðagreiðslu um frestun hækkana
Tillögu fimm aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands, um að launafólk greiði atkvæði um frestun hækkana var vísað til samninganefndar ASÍ.
Formannafundur Alþýðusambands Íslands fjallaði í gær um beiðni Samtaka atvinnulífsins um frestun á endurskoðun kjarasamninga til sumars og þar með frestun launahækkana.
Frestun var samþykkt til júníloka og þar með frestað þeim launahækkunum til félagsmanna á hinum almenna vinnumarkaði sem ættu að koma til 1. mars nk. Yfirgnæfandi meirihluti formanna aðildarfélaga ASÍ taldi skynsamlegast við núverandi aðstæður að fresta endurskoðuninni og freista þess að halda í innihald kjarasamningsins og ná hækkunum fram síðar.
Fjörugar umræður sköpuðust á fundinum og voru það einkum formenn nokkurra félaga á landsbyggðinni sem höfnuðu hugmyndinni um frestun algerlega. Þeir vildu launahækkanir 1. mars eins og samningar kveða á um. Það var hins vegar mat þeirra formanna sem voru á móti því að fresta launahækkunum að ekki væri grundvöllur fyrir því að fresta hækkunum til handa þeim sem starfa á lágmarkstöxtum.
Formaður Verkalýðsfélags Akraness sagði með öllu óviðunandi að lágmarkslaun væru lægri en atvinnuleysisbætur og það væri eitthvað sem þyrfti klárlega að lagfæra við þessa endurskoðun.
Atvinnuleysisbætur eru nú 149.523 krónur á mánuði. Að auki eru greiddar 276 krónur á dag með hverju barni undir 18 ára sem er á framfæri bótaþega. Lægstu launataxtar eru í kringum 140 þúsund krónur á mánuði.
Á fundinum í gær lögðu Verkalýðsfélag Akraness, Framsýn á Húsavík, Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Afl - starfsgreinafélag Austurlands og Drífandi í Vestmannaeyjum fram tillögu um að ef gert yrði samkomulag við Samtök atvinnulífsins um frestun á hækkun launa 1. mars nk. þá skyldi sú frestun lögð til atkvæðagreiðslu á meðal allra félagsmanna sem vinna eftir þeim samningum sem um ræðir.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ taldi formannafundinn ekki geta afgreitt umrædda tillögu og var henni því vísað til samninganefndar ASÍ.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness segir að fróðlegt verði að sjá hvort samninganefnd ASÍ afgreiði þessa frestun án þess að leggja hana í atkvæðagreiðslu á meðal félagsmanna sem starfa eftir þeim samningum sem um ræðir.
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 25. febrúar 2009, Innlent Sjá ekki ástæðu til að svara
- Miðvikudagur, 1. júlí 2009, Innlent Vilja allsherjaratkvæðagreiðslu
- Þriðjudagur, 17. mars 2009, Innlent Vill rifta samkomulagi um frestun samninga
- Föstudagur, 12. júní 2009, Innlent Hlíta vilja meirihlutans í ASÍ
- Miðvikudagur, 11. febrúar 2009, Innlent Staðið verði við gerða samninga
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































