122 viðskiptahugmyndir keppa um Gulleggið
Sigurvegarar Gulleggsins 2008, Eff2 technologies, ásamt stofnendum Innovit. F.v. Magnús Már einarsson, Andri Heiðar Kristinsson, Kristleifur Daðason, Friðrik Heiðar Ásmundsson, Herwig Lejsic og Stefanía Sigurðardóttir.
Gulleggið 2009, frumkvöðlakeppni Innovit stendur nú sem hæst og vinna 122 hópar og einstaklingar af fullum krafti að þróun og framgangi sinna viðskiptatækifæra.
Frumkvöðlakeppnin, sem hófst í janúar og stendur fram í lok mars, er skipt upp í þrjá áfanga. Í þeim fyrsta skiluðu þátttakendur inn stuttri lýsingu á viðskiptahugmynd sinni, í öðrum áfanga er fullmótuðuð viðskiptaáætlun send inn. Efstu keppendur sem komast í úrslitaáfangann kynna loks og verja hugmyndir sínar fyrir dómnefnd og fjárfestum.
Frumkvöðlakeppni Innovit er haldin að fyrirmynd sambærilegrar keppni við MIT háskóla í Bandaríkjunum en sú keppni ein og sér hefur skapað þúsundir starfa og verið stökkpallur fyrir ný sprotafyrirtæki sem samanlagt eru verðmetin á yfir 20 milljarða bandaríkjadala.
Keppnin er fyrst og fremst stökkpallur fyrir framúrskarandi viðskiptahugmyndir og vettvangur þjálfunar og tengslanets fyrir íslenska háskólanemendur, nýútskrifaða og frumkvöðla. Með öflugum stuðningi, námskeiðum og ráðgjöf sem keppendum stendur til boða samhliða keppninni er það markmið Innovit að skapa grundvöll fyrir nýjum fyrirtækjum og verðmætasköpun á Íslandi.
„Það er frábært að sjá hversu mikil frjósemi einkennir keppendur í frumkvöðlakeppninni í ár og hve fjölbreyttar viðskiptahugmyndirnar eru. Fjöldi þátttakenda fór fram úr okkar björtustu vonum og er töluverð aukning frá því á síðasta ári. Nú þegar hafa mörg fyrirtæki verið stofnuð í kjölfar keppninnar sem fór fram í fyrsta sinn árið 2008 og skapað fjölmörg ný störf fyrir vel menntaða íslendinga. Gulleggið er að okkar mati tákn nýrra tíma og táknar nýtt líf, nýjar og ferskar hugmyndir sem enn eru óskrifað blað en eru við það að brjótast út úr skurninni og líta dagsins ljós, vaxa og dafna. Það verður svo sannarlega spennandi að fylgjast með framvindunni í ár og sjá ný fyrirtæki blómstra á næstu árum,“ segir Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Innovit.
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 19. mars 2010, Innlent Fyrirferðarmiklir frumkvöðlar
- Fimmtudagur, 31. janúar 2008, Innlent Yfir 100 viðskiptahugmyndir
- Miðvikudagur, 17. mars 2010, Innlent 11 keppa um gullegg Innovit
- Mánudagur, 12. janúar 2009, Innlent Gulleggið 2009
- Mánudagur, 19. október 2009, Innlent Alþjóðleg athafnavika framundan
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































