Matsáætlun vegna Suðurlandsvegar
Skipulagsstofnun barst í gær tillaga Vegagerðarinnar að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum Suðurlandsvegar frá Hveragerði austur fyrir Selfoss.
Vegagerðin áformar að auka umferðaröryggi og afkastagetu Suðurlandsvegar, Hringvegar 1, á um 12 km vegkafla frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss. Þessu hyggst Vegagerðin ná með því að aðskilja akstursstefnur og fækka vegamótum.
Áformað er að byggja 2+2 veg og mislæg vegamót við Sólborgarhverfi, Hvammsveg eystri (374), Biskupstungnabraut (35) og við Laugardæli austan Selfoss. Einnig er áformað að byggja veggöng undir Suðurlandsveg við Kotstrandarkirkju og við Þórustaðanámu. Þá verður vegurinn færður norður fyrir Selfoss og ný brú byggð yfir Ölfusá.
Tengingum verður fækkað og reiðleiðir aðlagaðar nýju vegakerfi. Gert er ráð fyrir að göngu- og hjólaleiðir verði á og með hliðarvegum.
Hugsanlegt er að verkið verði unnið í áföngum þannig að byggður verði fyrst 2+1 vegur, með vegamótum í plani og þegar umferðarmagn kallar eftir því, fjölgað í tvær akreinar í hvora átt, þá hugsanlega með þröngu sniði.
Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 4. mars 2009 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Skipulagsstofnun hefur leitað umsagnar Flóahrepps, Hveragerðisbæjar, Sveitarfélagsins Árborgar, Sveitarfélagsins Ölfuss, Fiskistofu (lax- og silungsveiðisviðs), Fornleifaverndar ríkisins, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og Umhverfisstofnunar.
Stefnt er að því að ákvörðun Skipulagsstofnunar um tillögu framkvæmdaraðila að matsáætlun muni liggja fyrir 18. mars 2009.
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 14. janúar 2009, Innlent Matsáætlun kynnt á vefnum
- Föstudagur, 16. maí 2008, Innlent Breikkun Suðurlandsvegar í umhverfismati
- Mánudagur, 9. mars 2009, Innlent Suðurlandsvegur í umhverfismat
- Mánudagur, 19. maí 2008, Innlent Tillaga að matsáætlun hjá Skipulagsstofnun
- Miðvikudagur, 2. apríl 2008, Innlent Mislæg vegamót við Leirvogstungu í umhverfismati
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































