Fréttaskýring: Aðalatriði óbreytt en kröfurnar rýmkaðar
Stjórnin segir breytingar forsendu þess að Seðlabankinn ávinni sér traust. Bankastjórar vara við illa ígrunduðum breytingumog óskilvirkni. mbl.is/kristinn
Eftir Ómar Friðriksson - omfr@mbl
Flestir sem skilað hafa viðskiptanefnd umsögnum við seðlabankafrumvarpið gera athugasemdir við það skilyrði að seðlabankastjórinn, sem forsætisráðherra á að skipa að undangenginni auglýsingu, skuli hafa lokið meistaraprófi í hagfræði. Þetta er talið allt of þröngt skilyrði.
Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar, svaraði því játandi er hún var spurð í gær hvort nefndin mundi leggja til að þetta yrði rýmkað.
„Af hálfu ríkisstjórnarflokkanna stendur ekki til að gera breytingar á tveimur meginatriðum frumvarpsins, að fækka bankastjórum úr þremur í einn og að setja upp formlega peningastefnunefnd með aðkomu utanaðkomandi aðila. Hitt er allt til skoðunar og með það að markmiði að gera Seðlabankann enn betri.“
Viðskiptanefnd hefur fengið á þriðja tug umsagna um frumvarpið og fjöldi gesta hefur komið á fund hennar. Farið var yfir ábendingar og athugasemdir við frumvarpið á fundi viðskiptanefndar í gær. Álfheiður vonar að frumvarpið verði afgreitt úr nefndinni fyrir helgi.
Þröngar og óljósar kröfur
Þeir Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans, og Eiríkur Guðnason seðlabankastjóri setja fram hvassa gagnrýni á frumvarpið í umsögn sinni. Kröfur sem gerðar eru til seðlabankastjóra í frumvarpinu séu of þröngar og óljósar til að geta þjónað markmiðum um að tryggja farsæla yfirstjórn þeirra verkefna sem honum eru falin í lögum. Vísa þeir líka til þess að skilyrðið um meistarapróf stangist á við athugasemdir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), sem hafi tekið sérstaklega fram að embættispróf í lögfræði ásamt víðtækri reynslu af efnahagsmálum sé fullnægjandi skilyrði til að geta gegnt embætti seðlabankastjóra.Í athugasemdum AGS er því m.a. haldið fram að lög um yfirbankastjóra seðlabanka í öðrum löndum kveði almennt ekki á um hvaða menntun hann eigi að hafa, heldur sé almennt gerð krafa um viðurkennda þekkingu og reynslu. Í öðrum löndum séu yfirleitt einn eða tveir aðstoðarbankastjórar og samskonar skilyrði eigi að gera um hæfi þeirra og hvernig þeir eru valdir til starfans og til seðlabankastjóra.
Davíð og Eiríkur benda að í gildandi skipulagi bankans sé einn aðalbankastjóri og tveir bankastjórnarmenn með honum. „Í raun er verið að gera þá breytingu að í stað þriggja manna nefndar kemur fjölmennari nefnd, og störf tveggja bankastjóra, sem hvorugur er aðalbankastjóri, eru lögð niður. Starf aðalbankastjóra/formanns bankastjórnar er hins vegar enn til staðar, og þó að framvegis muni hann taka ákvarðanir um beitingu stjórntækja í peningamálum með fjórum öðrum en ekki tveimur eins og nú, og að niður séu lögð störf þeirra tveggja bankastjóra sem nú deila með honum völdum, gefur samþykkt fyrirliggjandi frumvarps ekkert tilefni til nýrrar auglýsingar starfs aðalbankastjóra, enda er starf hans ekki lagt niður með frumvarpinu.“
Samtök atvinnulífsins hafa gagnrýnt Seðlabankann harðlega og sagt hann trausti rúinn. SA telur þó í umsögn sinni að mikið skorti á vandaðan undirbúning við gerð frumvarpsins.
Tillögur ganga aftur
Þingmenn Samfylkingarinnar lögðu fram tillögu á sínum tíma, þegar núgildandi lög um Seðlabankann voru sett, um að bankastjóri við bankann yrði einn og ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans í peningamálum yrðu teknar af peningastefnunefnd.Þetta náði ekki fram að ganga en á þinginu 2003/04 lögðu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóhanna Sigurðardóttir og Lúðvík Bergvinsson fram frumvarp til „að tryggja, eins og kostur er, að fagleg sjónarmið ráði við skipan í embætti seðlabankastjóra og að ráðherra geti ekki komið sér undan því að rökstyðja ráðninguna,“ sagði í greinargerð.
Lögðu þau til að forsætisráðherra skipaði formann bankastjórnar og aðra bankastjóra til sjö ára í senn, líkt og gert er ráð fyrir í frumvarpinu sem nú liggur fyrir þinginu. Einnig að skylt yrði að auglýsa eftir umsóknum og aðeins yrði heimilt að skipa sama mann bankastjóra tvisvar sinnum eins og nú er lagt til í seðlabankafrumvarpinu.




































