Börðu skólabróður með kúbeini

mbl.is

Tveir af fimmmenningum sem réðust á skólabróður sinn í Fjölbrautarskóla Suðurlands í fyrra mánuði börðu annan skólabróður sinn með kúbeini fyrir tæpu ári. Þetta kom fram í fréttatíma Sjónvarpsins í kvöld.

Að sögn föður drengsins, sem ekki vill láta nafns síns getið, var árásin tilefnislaus. RÚV hefur eftir honum að það hafi verið mildi að kúbeinið lenti ekki á mænusvæðinu sjálfu heldur hafnaði rétt hjá því.

Fjölskylda drengsins kærði árásina til lögreglu sem hefur lokið rannsókn og vísað því til ákæruvaldsins. RÚV segir ungu mennina tvo enn stunda nám við Fjölbrautarskólann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert