Vanskil við LSH eru 550 milljónir
Vanskil stofnana í heilbrigðiskerfinu, gagnvart Landspítalanum, nema 550 milljónum króna. Það eru vanskil sem bera dráttarvexti. Þetta kom fram í munnlegri skýrslu heilbrigðisráðherra, Ögmundar Jónassonar, á Alþingi í dag. Kallaði hann þetta feluleik í kerfinu, og sagði að það kallaði á uppstokkun. Tók hann sem dæmi að St. Jósepsspítali - Sólvangur í Hafnarfirði, sé í 60 milljóna króna vanskilum við spítalann vegna veittrar þjónustu.
Þá sagði Ögmundur það lengi hafa verið opinbert leyndarmál að læknar þiggi margir afar háar greiðslur, í gegnum einkahlutafélög, sameignarfélög eða samlagsfélög, fyrir veitta sérfræðiþjónustu. Sagði hann dæmi um að sameignarfélag læknis hafi fengið 24 milljónir króna í nettó greiðslur á einu ári fyrir venjulegt starfshlutfall, og að á síðasta ári hafi einkahlutafélag læknis fengið í greiðslur 3 milljónir króna, fyrir einungis 10% starfshlutfall. Sagðist Ögmundur finna til samkenndar með þeim sem reki St. Jósepsspítala en að fyrirkomulag eins og þetta gangi ekki. Hann lýsti yfir furðu sinni á því að svona kerfi hafi fengið að blómstra án þess að forveri hans, Guðlaugur Þór Þórðarson, hefði tekið á málinu.
Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins tók undir með Ögmundi hvað varðar þessar greiðslur til félaga í eigu lækna og kallaði þau ofurlaun. Hún sagði það rekstrarform sem viðhaft hafi verið á St. Jósepsspítala það versta sem hægt sé að hugsa sér, þ.e. að blanda saman einkarekstri og opinberum rekstri á þann hátt. Að öðru leyti gagnrýndi hún ræðu Ögmundar og sagði hana hafa verið rýra í roðinu, auk þess sem hann hefði veist að fyrrverandi ráðherra með ómaklegum hætti. Hann hefði m.a. ekki lagt fram nein haldbær rök fyrir því að sveigja af þeirri braut sem fyrri ráðherra hafði markað, um hagræðingu í heilbrigðiskerfinu.
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 19. febrúar 2009, Innlent Guðlaugur vildi ekki ofurlaun lækna
- Þriðjudagur, 7. apríl 2009, Innlent Kæra Frumtaka árás á þjóð í þrengingum
- Miðvikudagur, 25. mars 2009, Innlent Fresta hækkun á gjaldskrá
- Mánudagur, 16. febrúar 2009, Innlent Þingmenn karpa um fjaðrir
- Fimmtudagur, 3. apríl 2008, Innlent Tekist á um útvistun heilbrigðisþjónustu
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































