Óútskýrður launamunur 7%

Konur voru með 17% lægri laun en karlar í fyrirtækjum, sem tóku þátt í launakönnun ParX í september. Eftir að margvíslegar forsendur höfðu verið teknar með í reikninginn stóð eftir að konur voru með rúmlega 7% lægri laun en karlar án þess að aðrar skýringar fyndust á því en kynferði.

Byggt var á upplýsingum um laun rúmlega 6000 starfsmanna í 37 fyrirtækjum. Könnunin var gerð í samvinnu við Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands. Í svipaðri könnun 2006 var óútskýrður launamunur 12%.

Skýrslan í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert