Afskrifa 1.500 milljarða
eftir Þórð Snæ Júlíusson - thordur@mbl.is
Gamli Landsbankinn áætlar að afskrifa 1.452 milljarða króna að lokinni skuldajöfnun. Þetta kemur fram í yfirliti eigna og skulda bankans sem kynnt var kröfuhöfum hans í gær. Til samanburðar færði gamla Kaupþing 954 milljarða króna á afskriftarreikning til bráðabirgða fyrr í þessum mánuði, en efnahagsreikningur Kaupþings var mun stærri en Landsbankans fyrir bankahrun.
Mestar afskriftir vegna útlána
Alls nam virði eigna bankans 2.647 milljörðum króna hinn 14. nóvember síðastliðinn þegar búið var að skuldajafna fyrir 785 milljarða króna. Í yfirlitinu kemur hins vegar fram að skilanefnd Landsbankans metur virði eigna hans nú 1.195 milljarða króna. Mestur hluti afskriftanna er vegna útlána til viðskiptavina bankans og krafna á önnur fjármálafyrirtæki, eða tæplega 1.100 milljarðar króna.
Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans, segir yfirlitið byggt á mati sem er áætlað miðað við núverandi stöðu. „Þetta teljum við raunhæft mat eins og staðan er í dag. Lánasöfnin sem voru færð yfir í nýja bankann hafa líka verið færð heilmikið niður. Þetta er það sem er að gerast. Það er svo mikil rýrnun á virði eigna.“
Á sama tíma nema skuldir Landsbankans 3.348 milljörðum króna. Þar af nema forgangskröfur, sem eru innstæður á Icesave-reikningum bankans, 1.338 milljörðum króna. Því munar um 144 milljörðum króna á eignum bankans og forgangskröfunum.
Bloggað um fréttina
-
Ásgeir Kristinn Lárusson Hryssingslegur hrossahlátur... -
Kristbjörg Þórisdóttir Hvar eru þessir peningar? -
Sigrún Jónsdóttir Ég mótmæli fjárglæframönnum gömlu bankanna! -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Innstæður á Icesave-reikningum Landsbankans, 1.338 milljarðar króna. -
-
Hörður Hilmarsson Frekari skuldajöfnun nauðsynleg
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 16. október 2009, Innlent Gengið áhrifamest
- Þriðjudagur, 25. nóvember 2008, Innlent Yfirlýsing frá stjórn gamla Glitnis
- Þriðjudagur, 9. júní 2009, Innlent Útlánin eiga að greiða Icesave
- Miðvikudagur, 18. mars 2009, Innlent Búið að afskrifa 1,8 milljarða
- Laugardagur, 13. desember 2008, Innlent Viðskiptavinir í Lúx telja sér mismunað
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































