Mikil fundahöld í þinghúsinu
Mikil fundahöld hafa verið í Alþingishúsinu síðdegis til að reyna að leysa hnút, sem Seðlabankamál er komið í. Þau fundahöld fóru þó ekki fram í þingsalnum því eftir að þingfundi hafði verið frestað þrívegis var fundinum slitið klukkan 17:30 án þess að gengið hefði verið til dagskrár.
Hefur Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, m.a. átt fundi með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokks, Katrínu Jakobsdóttur, vararformanni VG, og formönnum þingflokka stjórnarflokkanna og Álfheiði Ingadóttur, formanni viðskiptanefndar.
Einn úr röðum stjórnarþingmanna sagðist síðdegis eiga vona von á að samkomulag næðist þannig að hægt verði að halda þingfundum áfram í dag en það gekk ekki eftir.
Eftir að Guðbjartur Hannesson, forseti Alþingis, hafði slitið þingfundi kröfðust þingmenn Sjálfstæðisflokks þess að fá að ræða um störf þingsins og gagnrýndu að þingið hefði verið látið sitja aðgerðarlaust meðan rætt var í hliðarsölum um seðlabankafrumvarpið; hægt hefði verið að fjalla um önnur mál á meðan á þingfundi.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir vildi vita hvernig dagskrá þingsins ætti að vera næstu daga; sjálfstæðismenn vildu ræða brýn efnahagsmál.
Bjarni Benediktsson gagnrýndi að forsætisráðherra hefði sagt í fjölmiðlum í dag, að brýnar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar væru í uppnámi vegna þess að viðskiptanefnd þingsins hefði ekki náð að afgreiða frumvarp um Seðlabanka. Þetta væri ámælisvert vegna þess að þessar brýnu efnahagsaðgerðir væru ekki á dagskrá þingsins.
Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingar, sagði að það þyrfti að ná tökum á hagstjórn í landinu og það yrði ekki gert nema komið yrði á skipulagsbreytingum í Seðlabanka Íslands.
Guðbjartur sagði að menn ætluðu að reyna að nýta tímann vel í þinginu og þingmenn yrðu að aðstoða við það. Gert væri ráð fyrir að þingfundur verði haldinn á morgun samkvæmt áætlun.
Bloggað um fréttina
-
Jónas Egilsson Vantar fræðslu í krísustjórnun? -
Jenný Anna Baldursdóttir "Multiple personality" -
Jakob Falur Kristinsson Fundarhöld -
Friðrik Hansen Guðmundsson Riðar ríkisstjórnin til falls? -
Guðmundur Óli Scheving Höskuldur Þórhallsson á leið í Sjálfstæðisflokkinn !!!! -
Haukur Nikulásson Þessi Davíðssýki Sjálfstæðisflokksins er orðin endalaus þjóðarógæfa -
Óttarr Guðlaugsson Ríkis(ó)stjórn á suðupunkti -
Ragnheiður um nákvæmlega núna -
Þórir Kjartansson Þetta er ágætt.
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 28. maí 2009, Innlent Æði margir ráðherrar í húsi
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Mánudagur, 23. febrúar 2009, Innlent Þingfundi enn frestað
- Þriðjudagur, 24. febrúar 2009, Innlent Seðlabankalög á dagskrá þingsins í dag
- Mánudagur, 20. október 2008, Innlent Einhugur um að sækja um lán
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































