Einelti látið viðgangast á Selfossi?

Einelti er hræðilegt í öllum sínum birtingarmyndum. Myndin tengist ekki …
Einelti er hræðilegt í öllum sínum birtingarmyndum. Myndin tengist ekki fréttinni beint mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Móðir nokkur á Selfossi á þá ósk heitasta að geta flutt í burtu vegna þess að barnið hennar verður fyrir einelti í grunnskóla og hún telur ekki tekið á málinu. Kona ein kveðst hafa fylgst með baráttu vinkonu sinnar við skólann á staðnum, en vinkonan hefur barist fyrir því að tekið verði á einelti gegn barninu hennar.

Morgunblaðinu hefur borist fjöldi ábendinga frá foreldrum á Selfossi um að pottur sé brotinn í skólamálunum á staðnum, hvort sem er í grunnskólanum eða Fjölbrautaskóla Suðurlands, FSu, og birtir hér samtöl við nokkrar mæður, sem vilja ekki láta nafns síns getið til að vernda börn sín. Allir sem rætt hefur verið við eru sammála um að taka þurfi af meiri einurð á eineltismálum á Selfossi.

Móðir 1: „Sami strákurinn hefur verið að níðast á honum síðan í 1. bekk. Ég hef talað tvisvar við móður hans, síðast í vetur. Hún hafði aldrei heyrt það frá skólayfirvöldum að eitthvað hefði gengið á í gegnum tíðina,“ segir móðir drengs í Vallaskóla á Selfossi. Hún er ekki sátt við hvernig skólayfirvöld hafa brugðist við umkvörtunum hennar yfir því að sami strákur hafi lagt son hennar í einelti árum saman án þess að tekið sé á málinu. Hún segir yfirmenn í skólanum vísa hver á annan. „Hann fer ekki í leikfimi og hann fer ekki í sund af því honum líður svo illa. Ég er búin að ganga í gegnum hvílíkar hremmingar í öll þessi ár. Mér finnst með ólíkindum að skólastjórinn og deildarstjórinn vísi hvor á annan. Svo í ofanálag vísa þeir á þann sem sér um að framfylgja Olweus-áætluninni í skólanum, og hann kannast bara ekkert við þetta.“ Móðirin segir engum blöðum um það að fletta að ekkert sé unnið í þeim eineltismálum sem upp koma í skólanum. Hún hefur margsinnis talað við skólastjórann og deildarstjórann um mál sonar síns. Móðirin vildi sérstaklega taka það fram að kennarar eigi líka hlut að máli í einelti. „Þeir eiga líka sinn hlut í því að ekki er tekið á málunum, eru eiginlega orðnir meðvirkir,“ segir móðirin.

Móðir 2: „Drengurinn minn varð, ásamt fleirum, uppvís að hassneyslu í 10. bekk. Við tókum á því og fórum svo til skólastjóra með málið,“ segir móðir drengs sem var í Vallaskóla þegar málið kom upp, en síðan eru liðin nokkur ár. Hún er ekki sátt við viðbrögð skólayfirvalda í máli sonar síns sem játaði að hafa neytt hass á fundi með skólastjóra. Piltarnir sem með honum voru í umrætt sinn játuðu ekki. „Skólastjórinn trúði þeim strákum,“ segir móðirin. „Þó að þetta ætti að vera trúnaðarmál lenti strákurinn minn í einelti frá hendi kennaranna í skólanum, sem ráðlögðu öðrum strákum að forðast hann þar sem hann væri í „eiturlyfjaneyslu“.“ Strákurinn hennar fór til sálfræðings og vann heilmikið í sínum málum. „Yngri systur hans fengu líka að heyra það á skólalóðinni, frá kennara, að aðrar stelpur voru varaðar við því að vera með þeim af því að þær væru systur hans,“ segir móðirin. Foreldrarnir funduðu með skólastjóra og yfirmönnum hans um framkomu kennaranna. „Við sögðum það þá að það væri hassneysla í skólanum og það væri verið að selja það á skólalóðinni. Skólastjórinn vildi ekki meina það, en síðar kom í ljós að svo var. Þarna brugðust skólayfirvöld að því leyti að taka almennilega á þessum málum og gæta trúnaðar.“ Viðkomandi kennarar, segir móðirin, voru ekki látnir sæta ábyrgð fyrir að bregðast trúnaði og allir í skólanum vissu um málið. „Skólinn lætur einhvern veginn allt damla,“ segir hún.

Móðir 3: „Í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi er öllum markaður bás og ég hef miklar áhyggjur af klíkumynduninni sem viðgengst þar,“ segir móðir fyrrverandi nema í FSu. Sjálf er móðirin stúdent frá FSu og man ekki eftir því að þetta hafi verið svona á þeim tíma sem hún var í skólanum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert