Íhuga tímabundið afnám eftirlitsgjalds
mbl.is
Hugmyndir eru uppi um að afnema tímabundið eftirlitsgjald sem fasteignasölum er gert að greiða til hins opinbera.
Hver fasteignasali greiðir 100 þúsund krónur á ári til að standa straum af kostnaði við störf eftirlitsnefndar Félags fasteignasala. Rúmlega 200 fasteignasalar eru starfandi samkvæmt upplýsingum á vef viðskiptaráðuneytisins. Eftirlitsgjald nemur því rúmum 20 milljónum króna á ári.
Viðskiptaráðuneytið vinnur nú að heildarendurskoðun laga um fasteignasala en ljóst þykir að það frumvarp kemur ekki til kasta Alþingis á næstunni. Í frumvarpsdrögum sem fyrir liggja eru ákvæði um breytta innheimtu eftirlitsgjaldsins. Innheimtan hefur skilað mun meiri tekjum á undanförnum árum en eftirlitið hefur kostað. Það hafa því safnast upp sjóðir vegna eftirlitsgjalds og þykir fasteignasölum gjaldtakan óréttlát.
Auk 100 þúsund króna eftirlitsgjalds er fasteignasölum gert að greiða 90 þúsund krónur á ári í félagsgjald til Félags fasteignasala og 200 til 250 þúsund krónur á ári í tryggingagjald. Gjaldheimtan nemur því tæplega hálfri milljón á ári og þykir mörgum nóg um, ekki síst í því árferði sem ríkir í dag.
Á fundi viðskiptanefndar Alþingis í morgun var rædd sú hugmynd að afnema, tímabundið að minnsta kosti, innheimtu eftirlitsgjaldsins. Það yrði þá gert í ljósi þess að til eru nægir sjóðir til að standa undir eftirlitinu.
Málið er enn á umræðustigi og því liggur ekki fyrir hvort málið verður lagt fyrir Alþingi fyrir kosningar í vor eða hvort það verður viðskiptanefndin sjálf sem leggur málið fyrir Alþingi.
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn M Friðgeirsson Að sjálfsögðu á að afnema þetta strax ! -
Sigurður Sveinsson Firra.
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 15. mars 2009, Innlent Digur sjóður safnast upp
- Mánudagur, 16. mars 2009, Innlent Eftirlitsgjald með fasteignasölum fellt niður
- Föstudagur, 29. ágúst 2008, Innlent Fasteignasalar leggja inn leyfin
- Þriðjudagur, 2. september 2008, Innlent Eftirlitsnefnd leggur til lækkun gjalds
- Fimmtudagur, 18. desember 2008, Innlent Alvarlegar athugasemdir við fyrirhugað frumvarp um fasteignasölu
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































