Tafir á Holtavörðuheiði

Flutningabifreið valt á Holtavörðuheiði undir kvöld en meiðsli ökumanns eru minniháttar. Bíllinn er að hluta til á veginum en að hluta til utan hans og gera má ráð fyrir því að umferð á heiðinni tefjist fram eftir kvöldi

Farmur bílsins var fiskur en ekki er vitað hvort mikið af honum er skemmdur.

Varað hefur verið við mjög slæmu ferðaveðri í kvöld með mikilli ofankomu og hvössum vindi, á Vestfjörðum og Norðvesturlandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert