Vill upplýsingar um fyrirgreiðslu til einkahlutafélaga

Geir H. Haarde. stækka

Geir H. Haarde. mbl.is/Golli

Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, segist vilja að upplýst verði hvaða einkahlutafélög hafi fengið sérstaka fyrirgreiðslu hjá íslensku bönkunum. Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, sagði í Kastljósviðtali í gær að hundruð slíkra félaga hefðu fengið sérstaka þjónustu í bankakerfinu.

„Það sem mér þótti athyglisverðast í þessu viðtali, en margt sem þarna kom fram var ekki nýtt, var það sem hann sagði frá um hundrað einkahlutafélög í eigu hinna og þessara aðila, meðal annars í stjórnmálum," sagði Geir H. Haarde við fréttamenn nú síðdegis.

Sagðist Geir vilja að upplýst verði hvaða fólk þarna væri að ræða og hvart þarna hafi verið um sérstaka og óeðlilega fyrirgreiðslu að ræða.

Spurður um ummæli Davíðs um að hann hafi margoft að varað ráðherra vegna bankanna sagði Geir. „Við höfum margfarið yfir þetta, m.a. hér á Alþingi. Það er fátt nýtt sem kom þarna fram. Auðvitað höfum við margoft talað um þessi mál og gerðum það oft á síðasta ári. Seðlabankinn hefur líka sent frá sér opinberlega ýmsar upplýsingar og skoðanir, sem hann gerði á síðasta ári. Svo voru aðrir aðilar, sem hafa aðrar skoðanir á þessu, m.a. komu álit frá fræðimönnum sem gengu í báðar áttir. En auðvitað hlutum við líka að þurfa að taka tillit til þess, að Fjármálaeftirlitið gerði álagspróf á bönkunum, sem þeir flugu í gegnum og bankarnir sögðu okkur alla tíð sjálfir, að þeir væru búnir að tryggja sína fjármögnun út árið 2009. Í þeim fjölmörgu samtölum, sem við áttum við þá, m.a. í kjölfar ábendinga frá Seðlabankanum, kom ekki annað fram en að þeir myndu komast í gegnum þetta,“ sagði Geir.

Geir sagði að Davíð hefði komið sjónarmiðum Seðlabankans mjög skilmerkilega á framfæri í kastljósviðtalinu í gærkvöldi. Einni hafi komið mjög skýrt fram, að Seðlabankafruvmarpið sem nú er til meðferðar í viðskiptanefnd, varðar ekki stefnu eða stjórntæki bankans heldur eingöngu yfirstjórn hans.

Davíð sagðist í viðtalinu hafa komið á ríkisstjórnarfund 30. september í aðdraganda falls bankanna og sagt þar, að hann teldi að allt íslenska bankakerfið yrði komið á höfuðið innan 2-3 vikna. Um þetta sagði Geir, að Davíð hefði komið á ríkisstjórnarfund þótt ekki hefðu allir ráðherrar verið jafnánægðir með það eins og kom fram eftirá.

„Hann sagði frá því sem gerst hefði í kjölfar Glitnismálsins og þá var mjög hart sótt að hinum bönkunum. Það voru veðköll og annað þessháttar, kröfur um uppgreiðslu á lánum og staðan leit illa út. Það var það sem hann var að gera okkur grein fyrir og hann reyndist sannspár með það, en það tók það reyndar ekki 2-3 vikur heldur eina viku," sagði Geir.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
Nicolai bifreiðastillingar, Faxafeni 12 Sími 588-2455. Véla og hjólastillingar. ...
Nissan Patrol árg. 2000 til sölu
NISSAN PATROL 2,8 L. TD ELEGANCE '35 breyttur, árg. 2000 til sölu. Verð 1.350, e...
Stórar kjarrivaxnar útsýnislóðir
í skjólgóðri hlíð mót suðri í Hvalfirði, 55 km frá Rvík. Frábært útsýni. Heitt v...
Garmin Nuvi 1490T GPS tæki til sölu
Raddleiðsögn 5,0'' snertiskjár, umferðamóttakari, akgreinavísir, bluetooth, hand...
 
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...