Frelsisbarátta við fínslípaða yfirgangsmaskínu

Merki Tals stækka

Merki Tals

Jóhann Óli Guðmundsson, stjórnarmaður í Tali, segir Tal hafa átt í frelsisbaráttu við fínslípaða yfirgangsmaskínu og vísar þar til forsvarsmanna Teymis. Jóhann Óli segir í yfirlýsingu að það sé kunnara en frá þurfi að segja að þjóðin súpi nú seyðið af sambærilegri háttsemi í víðara samhengi.

Yfirlýsing frá Jóhanni Óla Guðmundssyni, stjórnarmanni í Tali:

Brotamenn stanga vegginn

„Í tilefni yfirlýsinga frá forsvarsmönnum Teymis í fjölmiðlum í dag er rétt að halda til haga eftirfarandi staðreyndum:

 Það er staðreynd að Samkeppniseftirlitið hefur um nokkurra mánaða skeið haft háttsemi forsvarsmanna Teymis gagnvart Tali til sérstakrar skoðunar.  Telur það sig hafa rökstuddan grun um að þeir hafi alvarlega og margítrekað brotið ákvæði samkeppnislaga og einnig farið gegn sérstökum úrskurðum eftirlitsins.  Alvarleg brot á samkeppnislögum leiða jafnan til verulegra viðurlaga.  Má í því sambandi nefna 2-3ja ára fangelsisdóm og háar fjársektir sem stjórnendur fyrirtækis í Bretlandi voru dæmdir í vegna brota á samkeppnislögum þar í landi nýverið. Eru þá ótalin viðurlög  viðkomandi fyrirtækis. Er greint frá þessu á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins.

 Það er einnig staðreynd að Samkeppniseftirlitið treysti ekki Teymi til að fara með 51% hlut sinn í Tali og neyddist því til að svipta það rétti til stjórnarsetu.  Varð að beita Teymi dagsektum uns það neyddist til að víkja sínum fulltrúum frá borði.  Er það einsdæmi í íslensku viðskiptalífi að yfirvöld þurfi að grípa til jafn harkalegra ráðstafana.  Samkeppniseftirlitið skipaði síðan tvo óháða fulltrúa í stjórn Tals í þeirra stað en dólgslegar yfirlýsingar forsvarsmanna Teymis í garð hinna lögskipuðu stjórnarmanna urðu til þess að þeir hröktust á brott eftir nokkurra daga viðveru. Mun Samkeppniseftirlitið væntanlega skipa nýja stjórnarmenn innan tíðar.

 Það hefur þráfaldlega komið fram opinberlega að brottrekstur Hermanns Jónassonar á stjórnarfundi Tals 30. desember sl. og ráðning Ragnhildar Ágústsdóttur í kjölfarið fór algerlega í bága við lög félagsins.  Nú hefur fjármálaráðuneytið úrskurðað að tilkynning til fyrirtækjaskrár í tengslum við þá gjörninga hafi verið ólögleg og hefur ráðuneytið gert fyrirtækjaskrá að afmá skráninguna. Á grundvelli þessa er Hermann því lögmætur forstjóri félagsins með prókúru fyrir þess hönd og Ragnhildur eðlilega látið af störfum.

Með lögum skal land byggja virðist vera illskiljanlegt orðasamband forsvarsmönnum Teymis. Tal, sem sjálfstætt félag, hefur átt í frelsisbaráttu við fínslípaða yfirgangsmaskínu og er það kunnara en frá þurfi að segja að þjóðin sýpur nú seyðið af sambærilegri háttsemi í víðara samhengi.  

Forsvarsmenn Teymis hafa hörfað úr hverju víginu í annað í varnarbaráttu sinni  við að draga athygli almennings frá kjarna málsins sem snýst um margítrekuð lagabrot gegn samkeppnisfrelsi Tals. Þess í stað hafa þeir reynt að telja almenningi trú um að deilan snúist um fjárhagsleg atriði milli hluthafa.  Er nöturlegt að hugsa til þess að áhrifamiklir aðilar, sem eiga að vera fyrirmynd í viðskiptalífi þjóðarinnar, skuli telja sér sæmandi að koma fram með þessum hætti og stanga vegginn frammi fyrir alþjóð.   - Er mál að linni.“

Jóhann Óli Guðmundsson

Jóhann Óli Guðmundsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Honda Shadow 125cc árg 2007.
Til sölu Honda Shadow 125 cc árg 2007 , ekið aðeins 900 km, lítur út eins og ...
Yamaha FJR 1300
Fyrsta flokks og glæsilegt mótorhjól. Yamaha FJR 1300 ár 2007 ekið 4.000 km V...
Mongoose Sycamore 26" fjallahjól
Stórgott óslitið 12 ára gamalt hjól til sölu; https://bland.is/messageboard/mes...
2010 TOYOTA LANDCRUSIER GX
Toyota Landcrusier 150 GX. Sjsk. Diesel, Ekinn 36.000. 2010 árgerð. Fallegur o...
 
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...