Góðir fundir með IMF

Steingrímur J. Sigfússon átti í dag fund með fulltrúum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Steingrímur J. Sigfússon átti í dag fund með fulltrúum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. mbl.is/Kristinn

Steingrímur J. Sigfússon, fjármála-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir fundi með starfsmönnum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) í dag hafa gengið vel. Þar hafi verið rætt um stöðu efnahagsmála. Ekkert liggi fyrir um hvenær hægt verði að lækka stýrivexti. Þeir eru nú 18 prósent. Það gerir greiðslubyrði margra fyrirtækja og heimila erfiða.

„Það liggur ekkert fyrir um hvenær mögulegt verður að lækka vexti. Það sem skiptir mestu máli er að fá fram allar upplýsingar um stöðu mála, og draga upp rétta mynd af stöðunni,“ sagði Steingrímur J. í samtali við mbl.is. Hann hefur setið á fundum í dag með fulltrúum sjóðsins. Þeir verða hér á landi til 10. mars en þeir komu í gær.

Ekki stendur til að endurskoða, eða breyta, efnahagsáætlun stjórnvalda og IMF. Til skamms tíma er helsta markmið áætlunarinnar að ná stöðugleika á gjaldeyrismarkaði og koma stoðum undir nýju bankanna. Stefnt er að því að ljúka verðmati á eignum og skuldum gömlu og nýju fyrir 15. apríl. Eftir það verður hægt að leggja bönkunum til eigið fé, sem reiknað er með að verði 385 milljarðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert