Fréttaskýring: Minni verðbólga eykur líkur á vaxtalækkun

Morgunblaðið Eftir Björn Jóhann Björnsson - bjb@mbl.is

Vísitala neysluverðs í febrúar hækkaði um 0,51% milli mánaða, samkvæmt mælingu Hagstofunnar, sem er nokkru minni hækkun en flestir höfðu spáð. Þannig hafði Greining Íslandsbanka, áður Glitnis, spáð um 1,1% hækkun í febrúar. Verðbólgan mælist nú á ársgrundvelli 17,6% sem er hjöðnun um eitt prósentustig síðan í janúar þegar ársverðbólgan var 18,6%. Síðustu þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,6% sem jafngildir 10,9% verðbólgu á ári. Síðan í desember hefur dregið verulega úr verðbólguhraðanum, en þá var þriggja mánaða verðbólgan 24%, og fór niður í 16,4% í janúar.

Samkvæmt þessari þróun virðist sem t.d. spá Seðlabankans hafi gengið eftir um að verðbólgan hafi nú náð hámarki sínu. Í síðustu Peningamálum kom fram að hratt muni draga úr verðbólgu á þessu ári og í byrjun næsta árs verði hún komin niður í 2,5%. Það er heldur jákvæðari spá en hjá greiningu Íslandsbanka, sem reiknar með 13% verðbólgu um mitt þetta ár og 5% í byrjun næsta árs.

Með lækkun verðbólgunnar hafa líkur aukist á að Seðlabankinn lækki stýrivexti sína, en næsti vaxtaákvörðunardagur er 19. mars.

Mesta íbúðalækkun í níu ár

Helsta ástæðan fyrir minni verðbólgu nú er lækkun á húsnæðisverði. Í mælingu Hagstofunnar nemur lækkunin 3,2% síðan í janúar. Er það mesta lækkun á þeim lið milli mánaða í níu ár. Á tólf mánuðum hefur húsnæðisverð lækkað að nafnverði um 6,2% en í fréttum Greiningar Íslandsbanka er bent á í gær að þetta samsvari raunlækkun húsnæðisverðs um rúm 20% á einu ári.

Séu aðrir liðir í neysluvísitölunni skoðaðir þá hækkaði verð á fötum og skóm um 6,3% milli mánaða en vetrarútsölum er að mestu lokið. Verð á pakkaferðum til útlanda hækkaði um 8,6% og verð á flugfargjöldum til útlanda hækkaði um 12,8%. Minni hækkun varð á öðrum vörum, eins og mat og eldsneyti.

Guðrún R. Jónsdóttir, deildarstjóri vísitöludeildar Hagstofunnar, segir lækkun verðbólgunnar hafa verið meiri en flestir reiknuðu með. Þar hafi mestu skipt meiri lækkun húsnæðisverðs en búist var við. Sáralítil breyting hafi orðið á matvörunni og líklegt að þær verðhækkanir hafi að mestu komið fram, ásamt því að gengi krónunnar hafi styrkst.

Hjöðnun framundan

Undir þetta tekur Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur hjá Greiningu Íslandsbanka, húsnæðisliðurinn hafi lækkað meira en þeir reiknuðu með. Áhrif af útsölum hafi einnig verið minni en spáð var. Bæði telja þau að búast megi við hraðri hjöðnun verðbólgunnar á næstu mánuðum. Benda þau á að í febrúar til maí á síðasta ári hafi gríðarlegar hækkanir orðið í hverjum mánuði, t.d. 1,5% í mars og 3,4% í apríl. Þetta geti að óbreyttu haft nokkur áhrif í mælingu vísitölunnar framundan.

Jón Bjarki telur það jákvætt fyrir komu sérfræðinga frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að verðbólgan hafi minnkað. Ásamt styrkingu krónunnar og betri greiðslujöfnun bendi allt til að aðgerðaáætlun sjóðsins sé að ganga eftir í stórum dráttum.

Ýmis kennileiti í efnahagsmálum styrkja nefnilega allar spár um lækkandi verðbólgu. Gengi krónunnar hefur sem fyrr segir verið að styrkjast, húsnæðisverð lækkað töluvert, kaupmáttur launa minnkað, atvinnuleysi aukist og verulega dregið úr eftirspurn og neyslu á markaði. Á sama tíma hefur olíuverð á heimsmarkaði lækkað og fari svo að gengi krónunnar styrkist enn frekar þá „eigum við inni“ töluverða lækkun á eldsneytinu, eins og Guðrún orðaði það.

Væn hækkun milli ára

Þegar skoðaðir eru einstakir vöru- og þjónustuliðir í vísitölu neysluverðs sést vel hve hækkunin milli ára er mikil.

Þegar skoðaðir eru einstakir vöru- og þjónustuliðir í vísitölu neysluverðs sést vel hve hækkunin milli ára er mikil. Verðbólgan á þessu tímabili er sem sagt 17,6% en sá vöruflokkur sem hækkað hefur mest er húsgöng, heimilisbúnaður og fleira, eða um 37,5%. Næst koma matur og drykkjarvörur, eða um nærri 29%.

Minnst hafa þau útgjöld hækkað sem snúa að menntun landsmanna, eða um 1,8% síðan í febrúar á síðasta ári. Útgjöld vegna póst- og símaþjónustu hafa hækkað um rúm 6%. Nokkuð hefur dregið úr hækkun á húsnæðisliðnum, sem nú er kominn í 8%. Nánari greiningu á vísitölunni má nálgast á vef Hagstofunnar, hagstofa.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HREINSISPREY
Kristals-hreinsisprey Hreinsisprey fyrir kristalsljósakrónur og kr...
Íþróttarimlar óskast
Rimlar (eins og í íþróttahúsum/leikskólum) óskast til kaups, mega vera gamlir og...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR, BARNAVÖRUR, SNYRTIVÖRUR OG MARGT FLEIRA. FRÁBÆR VERÐ - E...
Kvistir
Kvistir Sérsmíðaðir kvistir á þök. Uppsetning tekur ...
 
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....