Saka hvor annan um misskilning

Frá Alþingi.
Frá Alþingi. mbl.is/Árni Sæberg

Jón Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir að breytingartillaga meirihluta viðskiptanefndar Alþingis, sem lögð var fram við seðlabankafrumvarpið í dag, byggist á því að Höskuldur Þórhallsson, þingmanns Framsóknarflokks, hafi misskilið skýrslu Evrópusambandsins um fjármálamarkaði.

Höskuldur  mótmælti þessu og sagði að Jón hefði sjálfur misskilið tillögur, sem lagðar eru fram í skýrslu ESB. 

Samkvæmt breytingartillögunni skal peningastefnunefnd gefa opinberlega út viðvaranir þegar tilefni er, ef nefndin metur það svo að alvarleg hættumerki séu til staðar sem ógna fjármálakerfinu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert