Á fjórða hundrað kandídata brautskráðir

Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands. stækka

Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands. Kristinn Ingvarsson

„Við Íslendingar höfum náð okkur á strik eftir náttúruhamfarir.  Við höfum burði til að ná okkur eftir efnahagslegar  hamfarir,“ sagði Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands á háskólahátíð í dag. Hún lagði áherslu á vísindastarf og nýsköpun sem úrræði til að komast út úr þeim vanda sem nú steðjar að. Brautskráðir voru 367 kandídatar.

Kristín rektor kvaðst vilja auka hagnýtingu vísindarannsókna við skólann og uppbyggingu nýsköpunarfyrirtækja.  Nefndi hún dæmi um nýleg og eldri sprotafyrirtæki sem sprottið hafa upp í tengslum við Háskóla Íslands. Hún sagði einnig að Háskólinn væri meginmiðstöð rannsókna og umræðu í landinu um öll helstu mál samtímans. 

„Þetta endurspeglast m.a. í því að starfsfólk Háskólans hefur verið leitt til ábyrgðarstarfa við uppbyggingu samfélagsins og eru í hópi helstu sérfræðinga við greiningu þeirra samfélagsbreytinga sem nú eiga sér stað,“ sagði Kristín.

Háskóli Íslands hefur nýlega gert samstarfssamninga við tvo af fimm mest metnu háskólum í heiminum í dag -  Harvard háskóla og California Institute of Technology (Caltech).  „Þetta tel ég vera augljóst dæmi um nýsköpun því það leiðir til nýrra hugmynda og verðmætasköpunar.

Vísindamenn úr ýmsum greinum við Háskóla Íslands hafa um árabil verið í samstarfi við kennara í þessum skólum, en í krafti þessara nýju samninga koma kennarar frá Harvard hingað til að kenna stúdentum í lýðheilsuvísindum og leiðbeina í meistara- og doktorsverkefnum. 

Jafnframt verða ungir vísindamenn ráðnir sameiginlega af Háskóla Íslands og Harvard.  Nemendur héðan fara í annað sinn nú í sumar til CalTech til að vinna að rannsóknaverkefnum undir leiðsögn kennara þar í lífefnafræði, rafmagns- og tölvuverkfræði og eðlisfræði.  Nemendur frá CalTech í jarðvísindum, sameindalíffræði og eðlisfræði koma á móti til Háskóla Íslands,“ sagði Kristín í ræðu sinni. 

Háskóli Íslands brautskráði í dag 367 kandídata frá flestum deildum skólans. Meðal annars brautskráðust tvær heyrnarlausar konur, önnur úr hjúkrunarfræðideild hin úr félags- og mannvísindadeild. 

Heiðdís Dögg Eiríksdóttir útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur og mun vera  fyrsta heyrnarlausa konan til að brautskrást sem hjúkrunarfræðingur í Evrópu. Steinunn Lovísa Þorvaldsdóttir brautskráist með BA-próf í þjóðfræði með mannfræði sem aukagrein. 

367 kandídatar voru brautskráðir frá Háskóla Íslands í dag.

367 kandídatar voru brautskráðir frá Háskóla Íslands í dag. mbl.is/Kristinn

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Toyota Yaris árgerð 2006 DIESEL !!!
Toyota Yaris Diesel árgerð 07/2006. Ekinn 79.000 km. Sjálfskiptur. 5 dyra. Sil...
Gullfallegir Beagle hvolpar til sölu
Beagle hvolpar undan vel ættuðum foreldrum eru að leita að góðum heimilum. Verða...
UKELELE
Ukulele í úrvali. Verð frá 5.900. Gítarinn ehf., Stórhöfða 27. S. 552 2125. www....
Vor í Tungunum - www.eyjasolibudir.is
Falleg sumarhús til leigu um helgar og virka daga. Fallegt umhverfi. Heit laug o...
 
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...