Strandamenn í Vasa-göngu

Strandamenn eru í 90 km langri skíðagöngu í Svíþjóð.
Strandamenn eru í 90 km langri skíðagöngu í Svíþjóð. strandir.is

Þrír Strandamenn taka nú þátt í Vasagöngunni í Svíþjóð. Í henni eru  gengnir 90 km. á skíðum milli Sälen og Mora. Keppnin hófst í morgun. Strandamennirnir eru þeir Birkir Þór Stefánsson, Ragnar Bragason og Rósmundur Númason.

Á síðunni strandir.is eru tenglar þar sem hægt er að fylgjast með göngumönnunum. Þar má sjá tíma, sæti, meðalhraða og millitíma á nokkrum stöðum á leiðinni.

Frétt stranda.is um Vasagöngumennina

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert