Orkubú Vestfjarða hækkar verðskrár
Orkubú Vestfjarða hefur hækkað verðskrá sína um 13% að jafnaði. Kemur þetta fram á vef Bæjarins besta. Var hækkunin ákveðin á fundi stjórnar Orkubús Vestfjarða sl. laugardag.
Helsta breyting í uppbyggingu gjaldskrár er að tveggja þrepa verðlagningu dreifingar orkunnar er hætt og fast árlegt gjald hækkað til að mæta tekjutapi ásamt hækkun á ódýrara þrepinu sem eftir breytingu nær til allrar orku. Tengigjöld verða hins vegar óbreytt að sinni.
Er hækkunin rökstudd með vísan til verðlagshækkana frá síðustu breytingu verðskrárinnar 1/8 2008 og þess að vísitala byggingarkostnaðar hafi hækkað um 23,6% síðustu 6 mánuði. Þá er einnig bent á að Orkubú Vestfjarða hafi aðeins nýtt um 90% af tekjuramma sínum fyrir dreifingu raforku undan farin ár.
Á fyrrgreindum fundi stjórnar Orkubús Vestfjarða var ennfremur gerð svofelld bókun: „Með raforkulögunum var heimilað að skipta dreifiveitusvæðum raforku í dreifbýli og þéttbýli. Þessi uppskipting hafði það í för með sér að notendur í dreifbýli greiða umtalsvert hærra gjald vegna raforkudreifingar en notendur í þéttbýli. Við setningu raforkulaga var því heitið af stjórnvöldum að niðurgreiða að fullu þann kostnaðarmun sem hlýst óhjákvæmilega af því að dreifa rafmagni um strjálbýlli svæði. Við það hefur ekki verið staðið.
Með 13% hækkun verðskrár Orkubús Vestfjarða fyrir raforkudreifingu mun þessi munur aukast enn. Stjórn OV fer fram á að þessi munur verði jafnaður með auknum niðurgreiðslum úr ríkissjóði og þannig staðið við gefin fyrirheit stjórnvalda.“
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 4. september 2008, Innlent Raforkuverð hækkar
- Mánudagur, 4. janúar 2010, Innlent Raforkudreifing hækkar í verði
- Fimmtudagur, 1. janúar 2009, Innlent Orkuverð RARIK hækkar um 7-14%
- Þriðjudagur, 3. nóvember 2009, Innlent Segja gróðurhúsabændur sitja við sama borð og aðra
- Þriðjudagur, 31. mars 2009, Innlent Rafmagn til húshitunar hækkað umfram vísitölu
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































