Vilja draga úr mengun

Mengun frá vegum í Reykjavík getu oft verið mikil eins og sést á þessari mynd. stækka

Mengun frá vegum í Reykjavík getu oft verið mikil eins og sést á þessari mynd. Júlíus Sigurjónsson

Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur samþykkti í dag viðbragðsáætlun um loftgæði í Reykjavík. Viðbragðsáætlunin er sett með því markmiði að draga úr þeirri hættu sem mengunarefni í andrúmslofti geta haft á borgarana, segir í bókun nefndarmanna.

Heilbrigðisnefnd telur brýnt að skapa hið fyrsta aðstæður til að unnt sé að grípa til áhrifaríkari aðgerða varðandi bílaumferð og mengun frá henni. Reykjavíkurborg er fyrsta sveitarfélagið sem samþykkir viðbragðsáætlun um loftgæði en það er skylda samkvæmt lögum.

Viðbragðsáætlunin lýtur að skammtímaráðstöfunum vegna loftmengunar, að því er segir í tilkynningu. Undir það geta meðal annars fallið brunnar og önnur slys sem geta valdið mengun. Aðgerðir skulu miða við að draga úr hættu sem loftmengun yfir heilsuverndarmörkum getur valdið og stytta tímann sem hún varir. Einnig er unnið að mótun langtímaáætlunar í loftgæðamálum í gegnum Stefnu og aðgerðaáætlun í loftlags- og loftgæðamálum en sú vinna er hluti af Grænum skrefum Reykjavíkurborgar.

„Þessi áætlun er mikilvæg fyrir borgarbúa bæði hvað varðar loftgæði hér og nú og ekki síst með tilliti til heilsuáhrifa til lengri tíma, segir Árný Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. „Hér er búið að skilgreina þau atriði sem möguleg eru til að grípa inn í þegar búist er við að loftgæði verði slæm þá stundina, reyndar atriði, mörg hver sem Heilbrigðiseftirlitið hefur gripið til áður en nú verið er að lista upp. Hér er líka um að ræða aðgerðir vegna ýmisar annarrar bráðamengunar en þeirrar sem er af völdum samgangna, segir hún og að sérstakt viðbragðsteymi verði skipað sem kemur með tillögur um aðgerðir hverju sinni sem Heilbrigðiseftirlitið kemur síðan til með að skoða og framfylgja eftir því sem við á.

Viðbragðsáætlunin er samþykkt með þeim fyrirvara að í sumum tilfellum þurfi að breyta lögum til að gera hana mögulega. Í áætluninni kemur fram að ástæða þykir til að svifryk, köfunarefnisdíoxíð og brennisteinsvetni séu vöktuð sérstaklega þar sem reynslan sýnir að þessi efni eru líklegri en önnur að fara yfir viðmiðunarmörk. Viðmiðunargildi loftmengandi efna finnast oft í íslenskum lögum en þó ekki í tilfelli brennisteinsvetnis og er því miðað við leiðbeinandi mörk frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni og lyktarmörk frá Kaliforníu.

„Okkur fannst rétt að taka viðmið er varða brennisteinsvetni inn í áætlunina þó svo að skilgreind viðmið séu ekki til staðar þar sem borið hefur á því að brennisteinsvetni hafi haft áhrif á loftgæði í borginni,“ segir Eygerður Margrétardóttir framkvæmdastýra Staðardagskrár 21 hjá Reykjavíkurborg en hún og Anna Rósa Böðvarsdóttir heilbrigðisfulltrúi hafa stýrt vinnu við mótun áætlunarinnar.

Reykjavíkurborg hefur í mörg ár gert mælingar á svifryki og nokkrum öðrum mengandi efnum og gefið út viðvaranir til almennings. „Mikilvægt er að búa yfir sem bestum aðferðum og þekkingu til að geta spáð fyrir um loftmengun og til að bregðast við henni,“ segir Árný Sigurðardóttir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sendill
Nissan Vanette 2300 td '98, ekinn 190. Verð= tilboð eða skipti. 7775919...
Framstuðari á PT. Crushier 2005-8
Til sölu splunkunýr framstuðari. Fullt verð hér 135 þús.(Uppgefið Bíljöfur). Ég...
Ægisvagn til sölu
Ægistjaldvagn til sölu, 2007 árgerð með fortjaldi og eggjabakkadýnum. Vel með fa...
9 FM VANDAÐ BJÁLKAHÚS
9 fm vandað bjálkahús úr þéttum viði - fæst með eða án þakefnis. Verð kr. 374.90...
 
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...