Færri nemendur en fleira starfsfólk
Grunnskólanemendum fækkar frá síðasta skólaári en nemendur í grunnskólum á Íslandi voru 43.511 haustið 2008, auk þess sem 135 börn stunduðu nám í 5 ára bekk í 5 skólum. Grunnskólanemendum hefur fækkað um 330 frá síðastliðnu skólaári, eða 0,7%. Á sama tíma fjölgar starfsfólki við kennslu. Haustið 2008 voru 7.858 starfsmenn í grunnskólum á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 232 frá hausti 2007 eða um 3,0%.
Gera má ráð fyrir að nemendum grunnskóla fækki næstu árin því að þeir árgangar sem eru að hefja grunnskólanám eru fámennari en þeir árgangar sem ljúka munu grunnskólanámi. Grunnskólanemendur á Íslandi voru flestir haustið 2003, 44.809.
Þessar tölur koma úr gagnasafni Hagstofu Íslands, en Hagstofan hefur safnað upplýsingum um nemendur í grunnskólum á Íslandi í október ár hvert síðan haustið 1997.
Tæp 5% grunnskólanemenda hafa erlent móðurmál
Grunnskólanemendum sem hafa erlent tungumál að móðurmáli fjölgar ár frá ári og hafa aldrei verið fleiri. Haustið 2008 eru 2.069 grunnskólanemendur skráðir með erlent móðurmál eða 4,8% allra grunnskólanema. Flestir eru pólskumælandi, 633 talsins, og hefur fjölgað um 148 milli ára, eða um rúm 30%. Þá fjölgar nemendum með filippeysk móðurmál um 24 frá fyrra ári og enskumælandi nemendum um 22.
Fjöldi nemenda í einkaskólum stendur í stað
Skólaárið 2008-2009 eru 9 einkaskólar starfandi á grunnskólastigi með 666 nemendur. Það er fjölgun um 2 nemendur frá síðastliðnu skólaári. Ekki hafa áður verið fleiri nemendur í einkareknum grunnskólum á Íslandi frá upphafi gagnasöfnunar Hagstofu Íslands haustið 1997. Nýr einkaskóli tók til starfa síðastliðið haust í Reykjavík og öðrum var lokað á Suðurnesjum, og stendur fjöldi einkaskóla því í stað frá árinu áður.
Alls starfa 174 grunnskólar á landinu og er það óbreyttur fjöldi frá fyrra ári. Nýir skólar tóku til starfa á árinu en aðrir voru lagðir niður eða sameinaðir öðrum skólum. Fjölmennustu grunnskólar landsins eru Árbæjarskóli með 759 nemendur og Rimaskóli með 693 nemendur. Fámennasti grunnskólinn er Finnbogastaðaskóli á Ströndum þar sem einungis 2 stúlkur stunda nám. Í sérskólum, sem eru 4 talsins, stunda 143 nemendur nám.
Færri nemendur eru á hvert stöðugildi kennara
Alls störfuðu 5.084 starfsmenn við kennslu og skólastjórnun haustið 2008 og eru 9,3 nemendur á bak við hvert stöðugildi kennara. Nemendum á stöðugildi kennara hefur fækkað ár frá ári, og voru 9,5 nemendur á hvert stöðugildi í fyrra. Haustið 1998 voru 13,3 nemendur á hvern kennara.
Að meðaltali eru 18,3 nemendur í bekk en þá eru sérskólar og sérdeildir ekki taldar með. Bekkjarstærð vex með hækkandi aldri nemenda. Að meðaltali eru fæstir nemendur í 1. bekk, eða 16,2, en flestir nemendur í 10. bekk, eða 19,7. Ekki eru til tæmandi upplýsingar um fjölda kennara sem kenna hverjum bekk en í sumum tilvikum er stórum bekkjardeildum kennt af fleiri en einum kennara. Þá hefur ýmiss konar samkennsla árganga farið vaxandi og er ekki eingöngu stunduð í fámennum skólum á landsbyggðinni.
Starfsfólki við kennslu fjölgar þrátt fyrir fækkun nemenda
Haustið 2008 voru 7.858 starfsmenn í grunnskólum á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 232 frá hausti 2007 eða um 3,0%. Starfsmenn við kennslu og skólastjórnun voru 5.084 í 4.999 stöðugildum og hefur fjölgað um 85 frá fyrra ári, sem er 1,7% fjölgun. Stöðugildum starfsmanna við kennslu hefur fjölgað um 13 eða um 0,3%, sem þýðir að hver kennari vinnur skemur að meðaltali en árið áður. Starfsmönnum við kennslu fjölgar þó að grunnskólanemendum hafi fækkað um 330 frá síðasta skólaári. Þessar tölur eru úr gagnasöfnun Hagstofu Íslands sem safnar upplýsingum um starfsfólk í grunnskólum á Íslandi í október ár hvert.
Konum fjölgar meðal skólastjóra
Haustið 2007 voru konur í fyrsta skipti í meirihluta meðal skólastjóra. Haustið 2008 hefur konum meðal skólastjóra fjölgað enn frekar, og eru nú 54,8% skólastjóra. Eina starfsstéttin innan grunnskólans þar sem karlar eru í meirihluta eru húsverðir.
Karlmönnum við kennslu fjölgar um 6 manns en fækkar hlutfallslega um 0,2%. Eru karlar nú 20,8% kennara. Þó að karlmönnum fjölgi fækkar stöðugildum þeirra um 5.
Rúmur helmingur starfsfólks við kennslu er 30-49 ára
Haustið 2008 eru 55,8% kennara og skólastjórnenda á aldrinum 30-49 ára. Sé aldurshópnum skipt í 5 ára aldursbil eru flestir í aldurshópnum 35-39 ára eða 768 manns. Þegar aldur kennara er borinn saman við árið á undan hefur starfsmönnum yngri en 40 ára fjölgað um 12 og kennurum á aldrinum 40-54 ára hefur fækkað um 7 manns. Kennurum eldri en 55 ára hefur aftur á móti fjölgað um 80 manns frá fyrra ári. Meðalaldur starfsmanna við kennslu er nú 43,9 ár og hefur hækkað um 1,5 ár á síðastliðnum 6 árum.
Tæplega 85% starfsfólks við kennslu hefur kennsluréttindi
Alls hafa 84,8% starfsmanna við kennslu kennsluréttindi og er það óbreytt hlutfall frá fyrra ári. Haustið 2005 var þetta hlutfall hæst, 86,7%, og hefur því hlutfall réttindakennara lækkað um tæplega tvö prósentustig á þessum þremur árum. Hæst er hlutfall réttindakennara á landinu í Reykjavík þar sem 91,5% kennara hafa kennsluréttindi. Lægst er hlutfall réttindakennara á Austurlandi og Vestfjörðum þar sem 66,7% og 68,5% kennara hafa kennsluréttindi. Hlutfall réttindakennara á Vestfjörðum hefur hækkað um 4,6% frá hausti 2007.
Vert er að geta þess að 93,9% starfsmanna með kennsluréttindi hafa lokið háskólaprófi. Eldri kennurum með kennsluréttindi, sem luku prófi áður en kennaramenntun var flutt á háskólastig, fækkar ár frá ári.
Fleiri starfsmenn við kennslu eru í fullu starfi
Haustið 2008 eru 78,0% starfsfólks við kennslu og skólastjórnun í fullu starfi eða meira. Þetta hlutfall hefur verið að hækka undanfarin ár. Fyrir 3 árum var samsvarandi hlutfall 75,9%. Starfsmenn með kennsluréttindi eru hlutfallslega fleiri í fullu starfi en leiðbeinendur eru frekar ráðnir í hlutastarf.
Brottfall úr kennslu á milli ára er rúmlega 17%
Alls höfðu 863 starfsmenn við kennslu í október 2007 hætt eða fengið leyfi frá störfum í október 2008 og er brottfallið 17,3%. Þetta er svipað brottfall og síðastliðið ár þegar það mældist 17,4%. Það var hæsta brottfall sem mælst hafði í gagnasöfnun Hagstofu Íslands. Brottfall úr kennslu er hlutfallslega meira meðal þeirra sem ekki hafa kennsluréttindi og meðal þeirra sem eru í hlutastarfi.




































