Framtalsgerð hafin
Skattframtal á pappír frá árinu 2004. mbl.is
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is
Opnað var fyrir aðgang að skattframtölum á netinu á sunnudag en gert er ráð fyrir að um 240 þúsund manns muni skila skattframtali rafrænt í ár. Ríkisskattstjóri birtir nú sérstakar leiðbeiningar vegna álitamála hjá framteljendum í kjölfar bankahrunsins í haust.
Sannarlega eru fjárhagsaðstæður margra landsmanna óvenjulegar um þessar mundir. Því birtir Ríkisskattstjóri á netinu fjórblöðunginn „Nú er spurt“ þar sem fjallað er um ýmis álitamál við framtalsgerð er varða kreppuna og afleiðingar hennar. M.a. eru þar leiðbeiningar um hvernig tilgreina skuli vangoldin laun vegna gjaldþrots vinnuveitanda, hvernig brottflutningur og íbúðaskipti hafa áhrif á leigubætur og vaxtagjöld, hvernig tilgreina skuli endurgreidd gatnagerðargjöld vegna skila á lóð og hvernig færa skuli tap á hlutabréfum og verðbréfum.
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri bendir á að heimild sé fyrir því að niðurskrifa eignir í hlutabréfum og sjóðum sé raunvirði þeirra orðið lægra en nafnvirði. T.a.m. sé búið að niðurfæra eign þeirra í núll sem áttu hlutabréf í gömlu bönkunum. „Hins vegar hefur það ekki þá þýðingu sem það hafði fyrir nokkrum árum því það er ekki lengur greiddur eignaskattur af þessum bréfum. Eins er líklegt að ekki verði mikill söluhagnaður af þeim í framtíðinni svo menn ættu ekki að mikla þetta fyrir sér meira en ástæða er til.“
Skúli Eggert segir marga þeirra sem töpuðu fé í bönkunum munu sækjast eftir því að ríkissjóður bæti það tjón með ívilnun. „Fyrir því er ekki lagaheimild. Umboðsmaður Alþingis hefur m.a. fjallað um málið og komist að þeirri niðurstöðu að þeir sem taka þátt í atvinnu- eða áhætturekstri með kaupum á hlutabréfum eigi ekki rétt á að fá lækkun opinberra gjalda ef illa fer.“
Skiladagurinn er 23. mars
Undanfarin ár hafa rafræn skil á skattframtali færst mjög í vöxt en í fyrra skiluðu um 96% framteljenda á netinu. Í ár er skiladagur einstaklinga 23. mars en hægt er að sækja um frest í gegn um netið. Er þá viðkomandi úthlutað allt að níu dögum til viðbótar, en lokadagur framlengds frests er 1. apríl. „Þeir sem hafa atvinnu af framtalsgerð geta svo skilað enn seinna,“ segir Skúli Eggert.Frekari upplýsingar má fá á heimasíðunni www.skattur.is og á www.rsk.is. Þá verður hægt að fá framtalsaðstoð í síma 511 2250.




































