Runólfur hættir hjá Keili

Runólfur Ágústsson, framkvæmdastjóri Keilis tilkynnti á aðalfundi félagsins að hann sæktist ekki eftir endurnýjun ráðningarsamnings en samningur hans rann út 1. mars síðastliðinn. Tekjur Keilis í fyrra námu 661 milljón króna en heildargjöld 464 milljónum. Í árslok voru íbúar á háskólasvæðinu á Vallarheiði um 2000, nemendur Keilis um 500 og eigið fé félagsins hefur hækkað verulega og nemur nú tæplega 480 milljónum króna.

Aðalfundur Keilis, miðstöðvar vísinda fræða og atvinnulífs var haldinn á gamla varnarsvæðinu á Vallarheiði fyrr í dag.  Á fundinum lét Runólfur Ágústsson, framkvæmdastjóri félagsins frá stofnun þess af störfum.

Árið 2008 var fyrsta heila rekstrarár Keilis og óhætt er að segja að árið hafi verið félaginu gjöfult. Við stofnun Keilis voru honum sett skýr markmið af eigendum og stofnendum til næstu fimm ára. Segja má að þeim markmiðum hafi flestum verið náð strax á liðnu ári.

Í árslok voru íbúar á háskólasvæðinu á Vallarheiði um 2000, nemendur Keilis um 500 og eigið fé félagsins hefur hækkað verulega og nemur nú tæplega 480 milljónum króna. Markmið varðandi fjölda íbúa, nemenda og fjárhagslega stöðu hafa því náðst á fyrstu tveimur árunum í starfi Keilis.

Keilir byggist upp á fjórum mismunandi skólum auk Háskólabrúar þar sem undirbúningsnám fyrir háskólanám fer fram í samstarfi Keilis og Háskóla Íslands. Skólarnir eru Heilsu- og uppeldisskóli, Orku- og tækniskóli, Samgöngu- og öryggisskóli og Skóli skapandi greina. Hver þeirra hefur sínar áherslur í samræmi við markmið Keilis að byggja á mikilvægi  alþjóðaflugvallar og umhverfisvænum auðlindum en jafnframt að nýta þá þekkingu sem er til staðar í nærumhverfinu. Að auki eru innan fyrirtækisins þrjár stoðdeildir: Kennslusvið, þjónustusvið og rekstrarsvið.

Megintekjustofnar félagsins þríþættir: Tekjur af kennslu og rannsóknum, tekjur af útleigu og umsýslu húsnæðis á kampus og tekjur af sjóðum félagsins og öðrum eignum.

Rekstrartekjur félagsins á liðnu ári voru rúmar 585 milljónir króna og skiptast þannig að tekjur af kennslu og rannsóknum voru 262 milljónir, þjónustutekjur húsnæðis voru 130 milljónir og aðrar tekjur og 193 milljónir króna. Að teknu tilliti til fjármunatekna sem voru 76 milljónir, voru heildartekjur Keilis því 661 milljón en heildargjöld 464 milljónir króna.

Runólfur Ágústsson, fráfarandi framkvæmdastjóri sagði rekstur kennslu og rannsókna hjá Keili hafa verið í góðu samræmi við áætlanir en ljóst sé að varla megi nú vænta hagnaðar af slíkri starfsemi.

„Góða afkomu félagsins á árinu 2008 má hins vegar fyrst og fremst þakka góðri fjármögnun Keilis við stofnun hans og þeim tekjum sem við höfðum á liðnu ári vegna þess af eignum félagsins og sjóðum. Þær eignir hafa starfsmenn Keilis ávaxtað vel af trúmennsku við eigendur sína og sýnt í þeim efnum varfærni og skynsemi á viðsjárverðum tímum. Strax í desember sl. gerði ég formanni stjórnar grein fyrir þeirri ákvörðun minni að endurnýja ekki ráðningarsamning minn sem rann út hinn 1. mars sl. Grundvöllur þeirrar ákvörðunar er fyrst og fremst sá að ég tel að Keilir hafi náð þeim markmiðum sem skilgreind voru í upphafi og ég var ráðinn til að sinna. Starfi mínu er að því leyti lokið. Ég er sannfærður um að þessi ákvörðun mín, þótt hún væri mér erfið, er rétt bæði fyrir mig og Keili,“ sagði Runólfur Ágústsson fráfarandi framkvæmdastjóri Keilis.

Árni Sigfússon, stjórnarformaður Keilis færði Runólfi þakkir fyrir frábært starf.

„Með leiðsögn hans og eldmóði hefur verkefni Keilis náð dýpt og krafti með undraverðum hraða. Uppbyggingin á þessu fyrrum varnarsvæði þykir hafa tekist svo vel að erlendir aðilar með sambærilega reynslu af lokun herstöðva telja það vera eitt best unna umbreytingaverkefni í heimi.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Volvo Penta báta vél til sölu.48 hp
Vél í lagi , 48 hestafla nýtekinn úr bát vegna stækkunar á vél ca árg 86 Verð c...
Íbúð til leigu í Garðinum
4 herbergja Íbúð til leigu í Garðinum á Suðurnesjum. Laus 1. júlí. Langtímaleiga...
Yaris T-Sport 2007!!!!
Ek. 64 þús. 17'' felgur. Filmur. Xenon. Nýir diskar og klossar. Eins og nýr! Mjö...
Kisi er týndur
Hann er hvítur og grábröndóttur og týndist í Fossvoginum í nánd við Gróðrarstöði...
 
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....