Snjó kyngir niður fyrir vestan
Víðast hvar er orðið ófært á norðanverðum Vestfjörðum og alls ekkert ferðaveður.
Lögreglan á Ísafirði hefur í samráði við Veðurstofu Íslands rýmt atvinnuhúsnæði fyrir neðan Grænagarð á Ísafirði og starfsmönnum Netagerðarinnar, Eyrarsteypu og KNH verið gert að yfirgefa vinnustaðinn. Að auki hefur starfsmönnum sorpbrennslustöðvarinnar Funa í Engidal verið ráðlagt að vera ekki við vinnu utan varnargarðsins.
Einnig hefur Veðurstofan farið fram á rýmingu í Fremstu-húsum í Dýrafirði, Geirastaði í Syðridal, Höfða og Kirkjubæ í Skutulsfirði, Tankinn innan Flateyrar og Hraun í Hnífsdal. Verið er að athuga með viðveru í Fremri- og Neðri-Breiðadal og að Kirkjubóli í Korpudal í Önundarfirði. Hættustigi var lýst yfir Bolungarvík í gærkvöldi og þurftu fjórtán íbúar fimm húsa við Ljósaland og Traðarland að yfirgefa heimili sín.
Skólahaldi hefur verið aflýst í grunnskólum svæðisins auk þess sem kennsla fellur niður í Tónlistarskóla Ísafjarðar. Söfnum Safnahússins á Ísafirði og versluninni Konur og menn hefur verið lokað í dag.
Vegna veðurs og ófærðar hefur eftirfarandi íþróttamannvirkjum í Ísafjarðarbæ verið lokað það sem eftir lifir dags:
Sundhöll Ísafjarðar
Íþróttahúsinu Austurvegi
Íþróttahúsinu á Torfnesi
Íþróttamiðstöðinni á Suðureyri
Skíðasvæðunum í Tungudal og á Seljalandsdal.
Í morgun féll lítið snjóflóð á stálþil í Eyrarhlíð. Þá féll þunnt flóð yfir Hnífsdalsveg nálægt brekkunni við Hraðfrystihúsið.
Veðurspá Veðurstofunnar sem gildir til klukkan 18 á morgun gerir ráð fyrir norðaustan og norðan 18-25 m/s og snjókomu. Dregur úr vindi og ofankomu í kvöld og nótt. Norðaustan 10-15 m/s í fyrramálið og dálítil él, en hægari seint á morgun. Frost verður á bilinu 1 til 6 stig.
Myndasyrpa: Vetrarveður á Ísafirði
Birtingardagur: Þriðjudaginn, 3. mars 2009
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn Þ Gíslason NÚ KANNAST ÉG VIÐ MIG ! EN ENDILEGA EKKI, MISSKILJA ... -
Gunnar Th. Gunnarsson Heill landsfjórðungur einangraður
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 24. desember 2009, Innlent Enn viðbúnaður á Vestfjörðum
- Þriðjudagur, 3. mars 2009, Innlent Atvinnuhúsnæði rýmt á Ísafirði
- Föstudagur, 29. febrúar 2008, Innlent Varað við slæmu veðri
- Föstudagur, 8. febrúar 2008, Innlent Snjóflóð á Súðavíkurhlíðarveg
- Þriðjudagur, 3. mars 2009, Innlent Holtavörðuheiði orðin ófær
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































