Segir rangar fullyrðingar í Kastljósi

Björgólfur Thor Björgólfsson. stækka

Björgólfur Thor Björgólfsson. Ásdís Ásgeirsdóttir

Í bréfi sem Morgunblaðinu hefur borist frá Björgólfi Thor Björgólfssyni, segir að umfjöllun í Kastljósi á mánudagskvöld um málefni Landsbankans hafi verið ónákvæm og villandi.

Með framsetningunni sé augljóslega látið í það skína að Björgólfur Thor hafi farið með rangt mál og að það virðist vera inntak frásagnarinnar. „Hið rétta er að svör FSA og breska fjármálaráðuneytisins segja ekkert til um hvort orð mín standist eður ei. Hinsvegar hafa stjórnendur Landsbankans staðfest þau með formlegum yfirlýsingum mínum,“ segir í bréfi Björgólfs.

Viðræður en ekki samkomulag

Björgólfur segir rangt með farið að hann hafi í Kompásviðtali á Stöð 2 sl. haust sagt að Landsbankinn hafi gert samkomulag við breska fjármálaeftirlitið (FSA) um að taka Icesave innlánareikningana með flýtimeðferð inn í dótturfélag bankans í Bretlandi og þar með koma ábyrgðum á þeim reikningum í lögsögu breskra yfirvalda.

„Í kynningu á innslagi Kastljóss er fullyrt um samkomulag, í umfjölluninni sjálfri er þrisvar sinnum talað um samkomulag og þar er mér m.a. lagt í munn að hafa fullyrt um samkomulag og í fréttum Sjórnvarpsins er einnig staðhæft að ég hafi talað um samkomulag. Hið rétta er að ég talaði aldrei um samkomulag. Ég talaði um að viðræður hefðu átt sér stað við FSA og í samtölum stjórnenda bankans við starfsmenn þess hefði komið fram að ef Landsbankinn gæti greitt 200 milljónir sterlingspunda til Bretlands á mánudeginum væri FSA reiðubúið að veita flýtimeðferð (e. fast track) á Iceasave reikningunum inn í breskt dótturfélag bankans. Landsbankanum var því boðin flýtimeðrferð gegn því að greiða 200 milljónir sterlingspunda en þar sem bankinn fékk ekki fyrirgreiðslu varð ekkert úr mögulegu samkomulagi,“ segir í bréfinu frá Björgólfi.

Hann segir þennan grundvallarmun á orðum sínum og röngum fullyrðingum Kastljóss mjög mikilvægan, einkum þegar svar FSA og breska fjármálaráðuneytisins sé skoðað í heild. Fyrirspurn íslenska fréttamannsins hafi verið margræð og því komi svar fjármálaráðuneytisins og FSA ekki á óvart. Ráðuneytið vísi til þess að ekki hafi verið sá skilningur sem lýst sé í fyrirspurninni en svarið útiloki þó ekki að Landsbankinn hafi átt í viðræðum þeim sem fyrr er lýst við FSA.

„Fyrrgreind umfjöllun hefur verið meiðandi og er þess farið á leit við Kastljós og fréttastofu Sjónvarps að villandi og ónákvæm umfjöllun um orð mín verði leiðrétt í kvöld á sama vettvangi og í gærkvöldi [mánudagskvöld],“ segir í bréfinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Harley Davidsson 2003 árg, 100 ára afmælisútgáfa
Hrikalega flott hjól, ekið 6500 km, mjög vel með farið, fullt af krómi og aukahl...
Húsasmíðameistari.
Tek að mér smíði sumarhúsa. Get séð um frá sökkli að fullbúnu. Fagmennska uppl. ...
SÖLUSKOÐUN
Söluskoðanir bifreiða. Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn greina ástand hans áður ...
BEAGLE HVOLPAR UNDAN VEL ÆTTUÐUM FORELDRUM
Beagle hvolpar undan vel ættuðum foreldrum eru að leita að góðum heimilum. Verða...
 
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...