Ætla að skapa 4000 ársverk
Ríkisstjórnin hefur samþykkt viðtækar tillögur í atvinnumálum, sem ætlað er að skapa ríflega 4000 ársverk á næstu misserum.
Um er m.a að ræða störf í byggingariðnaði, við byggingu snjóflóðavarnargarða, gróðursetningu og grisjum, hækkun á endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar, ferðaþjónustuverkefni, fjölgun í hópi þeirra sem njóta listamannalauna og við inn- og útflutning á óunnum fiski.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, kynntu tillögurnar nú eftir hádegi. Össur sagði, að þessu til viðbótar gæti virkjun við Búðarháls og orkuiðnaður skapað 2000 störf til viðbótar. Ekki er gert ráð fyrir Helguvíkurálveri í þeim tölum.
Fjármunir til verkefnisins verða m.a. fengnir úr ýmsum sjóðum, þar á meðal Atvinnuleysistryggingasjóði og hugsanlega Íbúðalánasjóði. Steingrímur sagði að aðkoma Atvinnuleysistryggingasjóðs að þessu verði með þátttöku í átaksverkefnum. „Hann kemur að með ígildi atvinnuleysisbóta í formi launagreiðslna, í skilgreind átaksverkefni og forsendan er yfirleitt sú að í starfið ráðist aðili af atvinnuleysisskrá. Þá er sjóðurinn ekki verða í raun fyrir neinum viðbótarútgjöldum,“ sagði Steingrímur.
Össur sagði að nota ætti þau tæki sem fyrir hendi væru, fremur en að stofnað yrði til beinna útgjalda til að hrinda verkefnum af stað. „Við erum þá að tala um tæki eins og til dæmis peninga sem er að finna í ýmsum ráðuneytum, ýmsum sjóðum og verkefnum. Í sumum tilvikum þarf að breyta heimildum til að nýta þessa peninga,“ sagði Össur.
Meðal aðgerða sem ákveðnar hafa verið er að haldið verði áfram við byggingu tónlistarhúss, sem muni skapa 600 ársverk. ráðist verður í framkvæmdir við snjóflóðavarnir í Bolungarvík, Fjallabyggð/Ólafsfirði, Fjarðabyggð/Neskaupstað og við Holtahverfi á Ísafirði.
Ákveðið var að hækka endurgreiðsluhlutfall vegna kvikmyndaggerðar úr 14% i 20%. „Vitað er um tvö kvikmyndaverkefni sem eru í burðarliðnum þar sem þessi lagabreyting gæti ráðið úrslitum um það hvort þau verði unnin hér á landi. Þessi verkefni myndu skapa um 120 ársverk auk þess sem þau myndu hafa mjög jákvæð áhrf á ferðaþjónustu og vetingarekstur,“segir í greinargerð.
Unnið verður að ýmsum þróunarverkefnum í ferðaþjónustu og er áætlað að allt að 100 manns fái störf við þau á þessu ári.
Forsætisráðherra sagðist telja þetta mjög mikilvægt skref til að sporna gegn atvinnuleysi. Sennilega væru um 8% á atvinnuleysissrá í dag. Gera megi ráð fyrir að af þeim 4000 ársverkum sem eiga að verða til með þessum agðerum verði til störf fyrir 1400 til 1600 konur.
|
|
Áætlun ríkisstjórnarinnar |
Bloggað um fréttina
-
Magnús Þór Jónsson Góð skref í rétta átt -
Haugurinn bloggar á að fara að gera eitthvað? -
-
Grímur Jónsson Jóbama Sigurðardóttir -
Stefán Friðrik Stefánsson Kosningabragur á atvinnutillögum vinstrimanna -
Guðni Karl Harðarson Varúð! -
Jakob Falur Kristinsson Aukin störf -
Magnús Helgi Björgvinsson Það er sama hvað gert er alltaf getur fólk kvartað! -
Hilmar Heiðar Eiríksson Hurðu manni hvernig sækir maður um listamannalaun ???? -
Gestur Guðjónsson Hipp hipp hipp barbabrella einnar minnihlutastjórnar -
Helga R. Einarsdóttir Ég hef einmitt stundum verið að hugsa -
Smári Jökull Jónsson Fleiri góðar fréttir -
Vilhjálmur C Bjarnason Ekki ál takk. -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Hvers vegna á að flytja fiskinn inn og út, óunninn? -
Jón Baldur L'Orange Galli á gjöf Njarðar -
Birgir Þórarinsson Ágætis biðleikur en gjaldeyrissparandi/skapandi störf þarf þó til framtíðar -
Sigurður Sigurðsson Kosningaloforð -
Jón Aðalsteinn Jónsson Fjallið tók jóðsótt -
Sigurður Bogi Sævarsson New Deal -
Jón Snæbjörnsson Ætla að skapa 4000 ársverk -
Jón Helgi Björnsson Er þetta nýja Ísland -
Þóra Guðmundsdóttir Ég er á móti. -
Ásgrímur Hartmannsson Í hvaða flokki þarf ég að vera til að fá ... -
Gunnar Th. Gunnarsson Skaparar (skaffarar) -
Axel Jóhann Axelsson Gamansamir vinstri grænir -
Davíð Pálsson Hvers vegna er djúp kreppa að skella á um allan ... -
Hörður Þórðarson Hvernig væri að ráðast í verkefni sem skapa verðmæti en ...
Innlent »
Sunnudagur, 27.5.2012
-
Peningar ekki rót alls ills
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 18. júní 2009, Innlent Allt að 2500 störf hafa skapast
- Fimmtudagur, 11. júní 2009, Innlent Mikil traffík í iðnaðarráðuneyti
- Fimmtudagur, 28. janúar 2010, Innlent Peningagjöf í rannsóknarsjóð
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































