Joly: Viss um að menn misnotuðu aðstöðu sína

Eva Joly.

Eva Joly. mbl.is

Eva Joly, sérstakur ráðgjafi íslenskra yfirvalda varðandi rannsókn á efnahagsbrotum sem tengjast hruni fjármálakerfisins, segir að vegna reynslu sinnar af rannsóknum slíkra mála geti hún fullyrt að íslenskir fjárglæframenn hafi gert það sama og menn í öðrum löndum. Þ.e. misnotað aðstöðu sína og skotið undan fé.

 Joly sem þekkt er fyrir rannsóknir sínar á efnahagsbrotum í Frakklandi og starfar nú sem ráðgjafi norsku stjórnarinnar, sagði þetta í fyrirspurnartíma að loknu erindi hennar í Háskólanum í Reykjavík í dag. Þá sagði hún Bretland Gordons Brown vera eitt hinna svonefndu skattaskjóla.

Í erindi sínu fjallaði Joly um það hvernig fjölþjóðleg risafyrirtæki misnoti aðstöðu sína í þriðja heiminum og nýti sér skattaskjól til að fela ágóða. Sagði hún að samtímis sé verið að svindla á þjóðum þriðja heimsins þar sem í raun sé staðan sú að fyrir hvern einasta dollara sem vestræn ríki leggi ríkjum þriðja heimsins til fari tíu dollarar frá þeim annað hvort sem hagnaður í vasa vestrænna  fyrirtækja eða mútur til spilltra embættismanna í þriðja heiminum.

Joly sagðist vonast til þess að samþykktar verði tillögur um aðgerðir til að stemma stigu við skattaskjólum en að hún hafi þó ekki mikla trú á að sú verði reyndin. Sagði hún það m.a draga úr bjartsýni sinni að Bretland  Gordons Borwn væri einmitt eitt af þessum skattaskjólum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir og eiginmaður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.

Forseti reki ekki eigin stjórnmálastefnu

18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi fór ekki í grafgötur með það að val á forseta standi á milli hennar og Ólafs Ragnars Grímssonar. Þetta kom fram í ræðu hennar þegar hún opnaði kosningaskrifstofu sína í dag. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

17:46 Bíll skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Gagnrýnir túlkun forseta Íslands

Þóra Arnórsdóttir ávarpaði gesti við opnun kosningamiðstöðarinnar í dag.
17:36 Helsta ógnun við stjórnskipun landsins er teygjanleg túlkun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á valdsviði forseta. Þetta sagði Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi þegar hún opnaði kosningaskrifstofu sína í dag. Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Héraðsdómur Suðurlands.
16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í héraðsdómi Suðurlands fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sirius Hundasnyrting, Hundaheim Mosfellsbæ
Tökum allar gerðir hunda í snyrtingu - Persónuleg þjónusta og frábær verð, gerið...
Til sölu Volvo V70, árgerð 2006, ek. 83þ
Til sölu Volvo V70, árgerð 2006,ekinn 83 þús km .Innfluttur nýr frá Brimborg. Ál...
HÚSGÖGN,HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA TIL SÖLU.
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, ísskápar, þvottavélar, Þurrkarar, Nuddp...
Toyota Yaris
Mjög góður Yaris árgerð 2004 til sölu. Nánari upplýsingar má sjá hér... http://...
 
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...