Skoða áform um tónlistarhús
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is
Fjárlaganefnd hefur óskað eftir því að Ríkisendurskoðun framkvæmi sérstaka skoðun á framtíðaráformum um tónlistar- og ráðstefnuhús við Reykjavíkurhöfn. Stofnunin á síðan að skila af sér greinargerð um málið þar sem lagt verður mat á framtíðaráform um tónlistarhús í ljósi yfirlýsingar Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra í Reykjavík frá 19. febrúar síðastliðnum, en í yfirlýsingunni tilkynntu þær að haldið yrði áfram með byggingu hússins.
Fjárlaganefndin vill að fram komi í greinargerð Ríkisendurskoðunar hvort það sé heimilt samkvæmt fjárreiðulögum að taka veð í væntanlegum fjárframlögum ríkisins og leigugreiðslum Sinfóníuhljómsveitar Íslands líkt og stefnt er á að gera. Auk þess vill nefndin að Ríkisendurskoðun leggi mat á annars vegar fjárfestingu og fjármögnun verksins á byggingartíma þess og hins vegar á rekstrar- og greiðsluáætlanir á fyrstu starfsárum tónlistarhússins.
Fulltrúar Austurhafnar og fulltrúar fjármála- og menntamálaráðuneytisins komu fyrir fjárlaganefnd í gær til þess að gera grein fyrir framtíðaráformum um tónlistarhúsið. Nefndin óskaði í framhaldi eftir greinargerð frá bæði menntamálaráðuneytinu og Austurhöfn um framtíðaráform um húsið og eftir mati ráðuneytisins um hvort samkomulagið frá því í febrúar væri í samræmi við lög um fjárreiður ríkisins. Greinargerð ráðuneytisins á að kynna á fundi fjárlaganefndar hinn 23. mars nk.
Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar, segir að einhugur hafi verið í nefndinni að fylgja málinu eftir með þessum hætti. ,,Nefndin er ekki að gera sér upp niðurstöðu fyrirfram heldur er hún einungis að afla sér gagna til að geta metið framgang og fjárhagsskuldbindandi ákvarðanir, sem eiga að vera í samræmi við fjárreiðulög,“ segir hann.
Innlent »
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 3. mars 2009, Innlent Tekist á um Tónlistarhús
- Miðvikudagur, 31. desember 2008, Innlent Húsið bíður óklárað
- Föstudagur, 13. mars 2009, Innlent Fái aðgang að upplýsingum
- Mánudagur, 16. nóvember 2009, Innlent Icesave afgreitt út úr nefnd
- Sunnudagur, 20. desember 2009, Innlent Milljarður til Byggðastofnunar
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































