Ótíð á kolmunnaslóð vestur af Írlandi
Kolmunni. mbl.is
Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is
Tugur íslenskra nótaskipa hefur undanfarið verið á kolmunnaveiðum um 300 mílur vestur af Írlandi. Þokkalega hefur fiskast á milli en ótíð hefur gert veiðar erfiðar. „Þetta hefur verið leiðindaskakstur, það gefur kannski í örfáa tíma og svo brælir aftur,“ sagði Stefán Geir Jónsson, skipstjóri á Lundey, í samtali gærdag.
Hákon var á landleið í gær en á miðunum voru Vilhelm Þorsteinsson, Margrét, Faxi, Lundey, Ingunn, Bjarni Ólafsson, Börkur, Aðalsteinn Jónsson og Jón Kjartansson. Þeir á Lundey komu á miðin 6. marz og voru síðdegis í gær búnir að fá um 750 tonn í tveimur köstum. Vinnsluskipin frysta það sem þau geta af kolmunnanum en taka líka í bræðslu.
Auk íslensku skipanna voru rússnesk og norsk skip á tiltölulega litlu svæði í gær. „Þetta er blettafiskirí eins og sést á því að á mánudaginn fannst góð torfa og það voru ellefu skip að djöflast í henni. Það verður til þess að margir fá lítið,“ sagði Stefán Geir.
Kolmunninn veiðist á öllum tímum sólarhringsins þegar veðrið gefur mönnum á annað borð færi á að vera með veiðarfærin úti. Í gær hafði verið landað hér á landi 16.655 tonnum af kolmunna frá áramótum. Eitthvað af aflanum er úr færeyskum skipum en bæði Þrándur í Götu og Júpiter hafa landað hjá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði.
Innlent »
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 17. mars 2010, Innlent Vel gengur á kolmunna
- Þriðjudagur, 13. janúar 2009, Innlent Gengur vel á kolmunna og gulldeplu
- Þriðjudagur, 10. mars 2009, Innlent Skip HB Granda á kolmunnaveiðum
- Miðvikudagur, 14. maí 2008, Innlent 25 þúsund tonn af kolmunna veidd
- Föstudagur, 27. febrúar 2009, Innlent Með fullfermi af kolmunna
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































