91 milljón endurgreidd
mbl.is
Þann 11. desember 2008 voru lögfestar tímabundnar breytingar á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. og lögum um virðisaukaskatt, sem heimila endurgreiðslu vörugjalds og virðisaukaskatts af notuðum ökutækjum sem eru afskráð og flutt úr landi. Breytingunni er ætlað að greiða fyrir sölu notaðra ökutækja úr landi en við gildistöku laganna var útflutningur á ökutækjum þegar hafinn í þó nokkrum mæli. Samkvæmt lögunum er heimilt að endurgreiða vörugjald og virðisaukaskatt af afskráðum ökutækjum sem flutt eru úr landi fram til 31. desember 2009, að því er segir í vefriti fjármálaráðuneytisins.
Endurgreiðslan tekur mið af þeirri fjárhæð sem greidd var í vörugjald og virðisaukaskatt við innflutning ökutækis að teknu tilliti til aldurs þess. Þannig lækkar viðmiðunarfjárhæð endurgreiðslu um 2% fyrir hvern byrjaðan mánuð, fyrstu 12 mánuðina eftir skráningu ökutækisins, og 1,5% fyrir hvern mánuð eftir það. Samanlögð endurgreiðsla vörugjalds og virðisaukaskatts má þó ekki vera hærri en 2.000.000 kr. á hvert ökutæki.
„Óhætt er að fullyrða að endurgreiðslur vörugjalds og virðisaukaskatts af ökutækjum sem flutt hafa verið úr landi fari hægar af stað heldur en búist var við í upphafi en þá var gert ráð fyrir að sótt yrði um endurgreiðslur af allt að 5.000 ökutækjum á gildistíma laganna.
Fjárhæð endurgreiðslu á hvert ökutæki er hins vegar að meðaltali hærri heldur en búist var við," að því er segir í vefriti fjármálaráðuneytisins.
Færri umsóknir um endurgreiðslu vörugjalds og virðisaukaskatts af bílaleigubifreiðum hafa verið afgreiddar heldur en búist var við en nú bíða um 50 umsóknir um endurgreiðslu gjalda af bílaleigubifreiðum afgreiðslu. Mun lægra vörugjald er greitt við innflutning bílaleigubifreiða auk þess sem eigendur bílaleigubifreiða njóta innskattsréttar og því nema endurgreiðslur vegna þeirra mun lægri fjárhæðum," samkvæmt vefriti fjármálaráðuneytisins.
Innlent »
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 20. nóvember 2009, Innlent Áhrif skattahækkana ekki enn að fullu ljós
- Fimmtudagur, 2. apríl 2009, Innlent 6.700 umsóknir hjá Nýja Kaupþingi
- Föstudagur, 18. desember 2009, Innlent Hærri skattar hækka lánin um 13,4 milljarða
- Fimmtudagur, 15. október 2009, Innlent Hafa tekið út 24 milljarða króna af séreignasparnaði
- Fimmtudagur, 2. apríl 2009, Innlent Handbært fé ríkissjóðs dregst verulega saman
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































