Geir mótmælir ásökunum
Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, kom í ræðustól Alþingis í dag og mótmælti harðlega ásökunum um að hann hefði gefið rangar upplýsingar í skriflegu svari um hugsanlegt tilboð breska fjármálaeftirlitsins til Landsbankans í aðdraganda bankahrunsins.
Geir óskaði eftir því að bera af sér sakir og sagði að Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, hefði í utandagskrárumræðu um Icesave-málið í dag, og einnig í við annað tækifæri, gefið til kynna að Geir hafi gefið þinginu rangar upplýsingar í skriflegu svari við fyrirspurn frá henni um einn þátt bankahrunsins.
„Að sjálfsögðu hef ég ekki gefið þinginu rangar upplýsingar og ég mótmæli því að á mig sé borinn slíkur áburður. Ég mótmæli því," sagði Geir.
Sagði hann að Siv ætti að kanna það hvort einhver fótur væri yfirleitt fyrir því sem kallað hefði verið tilboð á síðustu stundu frá breska fjármálaeftirlitinu um að það myndi gegn 200 milljóna punda fyrirgreiðslu færa reikninga Icesave yfir í breska lögsögu.
„Hvað menn segja í örvæntingu sinni um miðja nótt er eitt og kannski ekki mikið mark á því takandi. En að koma síðan hér og bera á forsætisráðherrann að hann hafi sagt þinginu ósatt er óboðlegt og ég sætti mig ekki við það," sagði Geir.
Siv sagðist hafa spurt forsætisráðherra á sínum tíma hvort hann hefði vitað af þessu svokallaða tilboði, sem var í fjölmiðlaumræðu á sínum tíma, áður en Landsbankinn var tekinn yfir. Þessu hefði Geir, sem þá var forsætisráðherra, svarað neitandi. Einnig hefði hún spurt hann hvort embættismenn eða ráðgjafar hans hefðu haft slíka vitneskju og svarið var: Ekki svo ráðherra hafi verið kunnugt.
Síðan hefði birst frétt um síðustu helgi þar sem Tryggvi Þór Herbertsson, fyrrum efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, sagðist hafa sagt Geir frá þessu svokallaða tilboði mánudaginn 6. október, daginn sem neyðarlögin voru sett. „Það er þetta sem ég sagði hér áðan og ég sagði einnig að ég vonaði að hæstvirtur forsætisráðherra hefði sagt þinginu rétt frá. Nú hefur hann staðfest það í þingsal," sagði Siv.
Bloggað um fréttina
-
Finnur Bárðarson Er ekki hægt að fá lánaðan lygamæli? -
Heimir L Fjeldsted Skilningsvana Siv -
Dante Ekki benda á mig... -
Hannes Friðriksson Voru Árni Matt og Darling að tala þetta -
Ásgeir Kristinn Lárusson Á síðasta snúning... -
Guðmundur Pétursson Skammastu þin Geir Hilmar
Innlent »
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 23. apríl 2009, Innlent Ræða trúnaðargögn vegna Icesave
- Föstudagur, 10. október 2008, Innlent Brown gekk allt of langt
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Þriðjudagur, 9. desember 2008, Innlent Siv spyr enn um Icesave
- Mánudagur, 24. nóvember 2008, Innlent Segir Steingrím tefja rannsóknarnefnd
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































