Mikill samdráttur í verslun í febrúar
Velta í raftækjaverslun dróst saman um 52,9% á föstu verðlagi í febrúar miðað við sama mánuð í fyrra og um 28,9% á breytilegu verðlagi. Á síðasta ári minnkaði velta raftækjaverslana töluvert að raunvirði. Veltan í janúar síðastliðnum var þannig 45,2% minni en í janúar í fyrra. Rannsóknasetur verslunarinnar greinir frá þessu.
Fram kemur að dagvöruverslun hafi dregist saman um 13,8% á föstu verðlagi í febrúar miðað við sama mánuð árið áður. Þetta sé óvenjumikill samdráttur í veltu dagvöruverslunar á milli ára og aðeins einu sinni áður hafi mælst svo mikill samdráttur, en það hafi verið í desember síðastliðnum. Velta dagvöruverslunar jókst á breytilegu verðlagi um 13,5% í febrúar miðað við febrúar í fyrra. Verð á dagvöru hækkaði um 31,7% á einu ári samkvæmt verðmælingu Hagstofunnar.
Sala á áfengi minnkaði um 16,4% í febrúar miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og jókst um 10% á breytilegu verðlagi. Verð á áfengi hækkaði um 31.6% í febrúar miðað við sama mánuð í fyrra.
Velta fataverslunar var 23,7% minni í febrúar á föstu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra og um 2,4% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Á milli mánaðanna janúar og febrúar minnkaði velta fataverslunar um 40,6% á föstu verðlagi og 36,7% á breytilegu verðlagi, sem skýrist að einhverju leyti af lokum janúarátsalna. Velta í fataverslun hefur ekki verið minni að raunvirði frá því að Rannsóknasetur verslunarinnar hóf að mæla hana í janúar 2007.
Þetta átti einnig við um skóverslun. Þannig minnkaði velta skóverslunar í febrúar um 19,4% á föstu verðlagi og um 0,7% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Velta skóverslunar í febrúar dróst saman um 35,2% á föstu verðlagi frá janúar á undan, sem jafnan er útsölumánuður í skóverslun. Verð á skóm hækkaði um 4,9% í febrúar frá mánuðinum á undan og á fötum um 6,6%.
Næstmestur samdráttur, af þeim flokkum verslunar sem smásöluvísitalan nær til, var í húsgagnaverslun í febrúar. Veltan dróst saman um 40,8% á föstu verðlagi á síðustu 12 mánuðum og um 22,6% á breytilegu verðlagi. Velta húsgagnaverslunar hefur ekki verið lægri frá því að Rannsóknasetrið hóf að mæla veltuna í ágúst 2007. Verð á húsgögnum hækkaði um 30,8% frá því í febrúar 2008.
Spá mun meiri samdrætti í einkaneyslu
„Verulega hefur dregið úr veltu í smásöluverslun undanfarna mánuði að raunvirði og var samdrátturinn meiri í febrúar en áður hefur mælst, ef desember síðastliðinn undanskilinn. Mestur var samdrátturinn í raftækjaverslun, þá húsgagnaverslun og þar á eftir fata- og skóverslun. Velta í dagvöruverslun hefur ekki verið minni að raunvirði frá því í febrúar 2007, en það var var óvenju veltulítill mánuður. Hafa ber í huga að dagvöruverslun er venjulega mun ónæmari fyrir verðhækkunum og efnahagssamdrætti en aðrar tegundir verslunar.
Eftir að janúarútsölum lauk á fötum, skóm og annarri sérvöru virðist sem neytendur haldi að sér höndum við kaup á þessum vörum. Janúarútsölurnar skiluðu versluninni samt ekki sama árangri og í fyrra því töluverð raunminnkun varð í sölu á fötum og skóm í janúar miðað við sama mánuð í fyrra.
Spáð er mun meiri samdrætti í einkaneyslu hér á landi en í nágrannaríkjum okkar og á evrusvæðinu. Þannig er gert ráð fyrir 24,1% samdrætti í einkaneyslu hér á landi á þessu ári en gert 1% samdrætti á evrusvæðinu. Þessi minnkun á einkaneyslu kemur misjafnlega niður á ólíkum tegundum verslana. Þannig má gera ráð fyrir meiri samdrætti í munaðarvöru og vörum sem ekki eru jafn aðkallandi fyrir neytendur eins og matur, lyf o.þ.h. Hið jákvæða er að verðbólga fer nú minnkandi sem gæti leitt til bætts kaupmáttar og þá má ætla að verslun glæðist á ný,“ segir í tilkynningu frá Rannsóknasetri verslunarinnar.



































