Ríkari kröfur til stjórnarmanna
Ríkari kröfur verða gerðar til stjórnarmanna í eignasýslufélagi ríkisins en stjórnarmanna í almennum hlutafélagalögum. Frumvarp sem heimilar stofnun eignasýslufélags ríkisins var lagt fram á Alþingi í gær. Hlutafé verður 20 milljónir króna og er félaginu ætlað að stuðla að endurskipulagningu þjóðhagslegra mikilvægra atvinnufyrirtækja. Slíta á félaginu innan fimm ára frá stofnun þess.
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í vikunni frumvarp Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra um stofnun hlutafélags í eigu ríkisins til að stuðla að endurskipulagningu þjóðhagslegra mikilvægra atvinnufyrirtækja sem komin eru í rekstrarerfiðleika en eru talin skipta miklu máli fyrir íslenskt samfélag.
Ætlunin er að tryggja áframhaldandi starfsemi fyrirtækjanna til framtíðar. Frumvarpið byggist á fyrstu starfsáætlun samráðsnefndar um endurreisn fjármálakerfisins. Samkvæmt frumvarpinu er félaginu heimilt að kaupa eignarhluti í þjóðhagslega mikilvægum atvinnufyrirtækjum sem þarfnast endurskipulagningar og eru komin í eigu ríkisbanka eða annarra fjármálafyrirtækja.
Ekki er ætlunin að eignasýslufélagið kaupi öll atvinnufyrirtæki sem fjármálastofnanir eignast eða allar kröfur þeirra. Samkvæmt lauslegri könnun starfshóps sem vann að samningu frumvarpsins virðast allir ríkisbankarnir hafa komið sér upp vel skilgreindum verkferlum til að koma atvinnufyrirtækjum í erfiðleikum til aðstoðar með endurskipulagningu. Ríkisbankarnir hafa jafnframt komið sér upp sínum eigin eignasýslufélögum til að sinna slíkum verkefnum og má gera ráð fyrir að sama gildi um aðrar fjármálastofnanir.
Þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki
Í frumvarpinu er lagt til að eignasýslufélag ríkisins sinni einungis þeim félögum sem teljast þjóðhagslega mikilvæg samkvæmt skilgreiningu frumvarpsins og ljóst er að endurskipulagningin verði það umfangsmikil og erfið að það íþyngi verulega almennri bankastarfsemi eða takmarki jafnvel getu fjármálafyrirtækjanna til að sinna endurskipulagningu annarra atvinnufyrirtækja. Í greinargerð segir að erfitt sé að skilgreina í lagatexta með fullnægjandi hætti hvað telst þjóðhagslega mikilvægt atvinnufyrirtæki. Í frumvarpinu er þó gert ráð fyrir að slíkt fyrirtæki sinni svo mikilvægum almanna- eða öryggishagsmunum að stöðvun þess um lengri eða skemmri tíma valdi verulegri röskun í þjóðfélaginu öllu. Með almannahagsmunum er átt við þá starfsemi atvinnufyrirtækja sem snúa að nauðsynlegum grunnþörfum samfélagsins eða eru mikilvægir hlekkir í innviðum þess. Með öryggishagsmunum er t.d. átt við starfsemi sem snýr að fæðuöryggi, fjarskiptum, flutningi fólks eða farms milli landa eða innan lands.
Ríkari kröfur til stjórnarmanna
Í stjórn félagsins verða skipaðir fimm menn og tveir til vara. Þeir eiga allir að hafa haldgóða menntun og sérþekkingu á fjármálum og rekstri fyrirtækja. Stjórnarmenn eiga að vera lögráða og mega ekki á síðustu fimm árum hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota eða hlotið dóm í tengslum við atvinnurekstur samkvæmt hegningarlögum, samkeppnislögum eða lögum um fjármálafyrirtæki, hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga eða gjaldþrot. Samkvæmt lögum um hlutafélög er tímamarkið 3 ár.
Hlutafé umsýslufélagsins við stofnun verður 20 milljónir króna. Þá er í frumvarpinu lagt til að fjármálaráðherra skipi þriggja manna nefnd með fulltrúum fjármálaráðuneytis, viðskiptaráðuneytis og Ríkisendurskoðunar. Hlutverk nefndarinnar verður að leggja mat á fjárhagslega þörf félagsins og hver heildarfjárhæð stofnfjár skuli vera miðað við áætlaða starfsemi og árlega þörf fyrirtækisins fyrir rekstrarfé. Lagt er til að nefndin skili niðurstöðu eigi síðar en þremur mánuðum eftir stofnun félagsins.
Tímabundið úrræði
Miða er við að sala eignarhluta í atvinnufyrirtækjum sem eignasýslufélagið hefur eignast og orðin eru rekstrarhæf eigi sér stað um leið og markaðsaðstæður leyfa. Ekki er ljóst hver er fjöldi þeirra fyrirtækja sem gætu fallið undir starfsemi félagsins. Í frumvarpinu er því gert ráð fyrir að sérstakri nefnd verði falið að leggja mat á fjárhagslegt umfang starfseminnar og þörf félagsins fyrir rekstrarfé. Það er fyrst þegar sú nefnd hefur lokið störfum að fyrir liggur mat á hugsanlegum kostnaði ríkisins við yfirtöku fyrirtækjanna.
Þá er gert ráð fyrir að félaginu verði slitið innan fimm ára frá stofnun þess. Talið er eðlilegt að setja félagi sem þessu skýr tímamörk enda ekki ætlunin að slíkt félag reki rekstrarhæft atvinnufyrirtæki lengur en brýna nauðsyn ber til.



































