Aukið eftirlit með fjármálafyrirtækjum
Neytendastofa og norrænar systurstofnanir hennar, sem fara með eftirlit og framkvæmd laga á sviði neytendamála á Norðurlöndunum, hafa markað sér þá sameiginlegu stefnu fyrir næsta ár að auka eftirlit með bönkum og lánastofnunum með það að markmiði að réttindi neytenda séu að fullu virt.
Þetta var ein af niðurstöðum árlegs samráðsfundar forstöðumanna neytendamála, sem haldinn var í Reykjavík í liðinni viku. Þá var ákveðið að vinna sérstaklega að því að tryggja réttindi neytenda á sviði neytendalána og viðskipta þeirra við fjármálastofnanir, að því er segir í tilkynningu.
Tryggvi Axelsson, forstjóri Neytendastofu, segir að fjármálakreppan og það efnahagsástand sem hefur skapast í kjölfar hennar hafi nú þegar valdið miklum erfiðleikum fyrir neytendur á Norðurlöndum. „Allt bendir til að allar afleiðingar hennar séu enn ekki komnar að fullu fram og hvaða áhrif hún muni hafa á lögvarin réttindi neytenda á næstu árum.“
Hann bendir á í fréttatilkynningu að mikilsvert sé að bankar og önnur fjármálafyrirtæki virði að öllu leyti sett lög á sviði neytendalána. Það séu ríkir hagsmunir fyrir neytendur og samfélagið í heild að eftirlit sé haft með réttindum neytenda í viðskiptum við banka og önnur fjármálafyrirtæki.
Tryggvi segir að á fundinum hafi komið fram að eftir að kreppan skall á hafi stórfjölgað erindum og fyrirspurnum frá neytendum um réttindi sín gagnvart bönkum og lánastofnunum. „Þetta hefur ekki aðeins gerst hér á landi heldur einnig á Norðurlöndunum. Bankar hafa ríka upplýsingaskyldu gagnvart viðskiptavinum og ríkar kröfur eru gerðar til skilmála í lánssamningum við neytendur. Því er áríðandi að lög og reglur um lánastarfsemi séu hafðar í heiðri.“
Neytendastofa hefur fengið fjölda mála á undangengnu ári er varða ágreining neytenda og fjármálastofnana og segir Tryggvi að þau mál hafi ákveðinn forgang. „Neytendayfirvöld á Norðurlöndum líta á þetta eftirlit sem forgangsverkefni og hyggjast standa öflugan vörð um réttindi neytenda og fjárhagslega hagsmuni þeirra á þessum erfiðu tímum.“
Innlent »
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 9. nóvember 2009, Innlent Áfrýjunarnefnd vísar frá kæru Brimborgar
- Miðvikudagur, 9. september 2009, Innlent Tveir uppfylltu skilyrði laga
- Miðvikudagur, 29. apríl 2009, Innlent Vill neyðarlög um íbúðalán
- Miðvikudagur, 7. apríl 2010, Innlent Kvartanir neytenda óvíða fleiri en hér á landi
- Mánudagur, 10. nóvember 2008, Innlent Fyrirvari um útgreiðslur úr peningamarkaðssjóðum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































