Heiðraðir fyrir björgunarafrek

Frá afhendingunni í morgun. (F.v.) Vilhjálmur Vilhjálmsson, Eðvaldi Ingi Árnason …
Frá afhendingunni í morgun. (F.v.) Vilhjálmur Vilhjálmsson, Eðvaldi Ingi Árnason og Sigurbjörn Björnsson.

Tveir starfsmenn HB Granda, Eðvald Ingi Árnason og Sigurbjörn Björnsson, voru í morgun heiðraðir fyrir björgunarafrek sem þeir unnu í síðasta mánuði.

Eðvald og Sigurbjörn björguðu tveimur starfsmönnum Löndunar ehf. úr bráðri lífshættu í lest uppsjávarveiðiskipsins Ingunnar AK. Var tækifærið notað til að afhenda þeim viðurkenningarnar við komu Ingunnar AK til Akraness í morgun.

eins og fram kom í fréttum þá misstu tveir starfsmenn Löndunar ehf. meðvitund vegna súrefnisskorts við vinnu sína í lest Ingunnar AK er verið var að landa gulldeplufarmi á Akranesi.

Eðvaldi Inga, sem er vaktstjóri í fiskmjölsverksmiðju HB Granda á staðnum, og Sigurbirni, sem er vélstjóri á Ingunni AK, tókst að bjarga mönnunum úr lestinni og hafa þeir nú náð sér að fullu. Ljóst þykir að ekki mátti tæpara standa og að með snarræði sínu hafi Eðvald Ingi og Sigurbjörn bjargað lífi mannanna.

Á vef HB Granda er haft eftir Vilhjálmi Vilhjálmssyni, deildarstjóra uppsjávarsviðs HB Granda, að gerðar hafi verið ráðstafanir til að koma í veg fyrir að svona nokkuð geti gerst aftur. Keyptir hafi verið súrefnismælar og þeim komið fyrir í öllum þremur uppsjávarveiðiskipum félagsins og í fiskmjölsverksmiðjunum Akranesi og Vopnafirði.

Auk þess verða löndunarmenn framvegis búnir slíkum mælum og ströng fyrirmæli eru um að starfsmenn fari í ekki í tanka eða lestar án þess að athuga fyrst hvort nægt súrefni sé fyrir hendi. Gildir þá einu hvenær verið er að vinna eða hvaða fisktegund unnið er með.

Vefur HB Granda

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert