Framhaldsskóli verður að veruleika

Í dag var skrifað undir samkomulag um byggingu framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Svanfríður Jónasdóttir oddviti Héraðsnefndar Eyjafjarðar og bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð og Þórir Kr. Þórisson bæjarstjóri Fjallabyggðar undirrituðu samninginn. Þetta kemur fram á vef Fjallabyggðar.

Undirritunin fór fram í Tjarnarborg að viðstöddum 10. bekkingum frá Dalvík, Ólafsfirði og Siglufirði ásamt bæjarstjórum, bæjarfulltrúum og íbúum af Eyjafjarðarsvæðinu.

„Búið er að skipa bygginganefnd og er áætlað að framkvæmdir við skólabyggingu í Ólafsfirði hefjist þegar á þessu ári. Þar sem byggingu skólans verður ekki lokið fyrr en árið 2010, er gert ráð fyrir að skólahald hefjist í bráðabirgðakennsluaðstöðu haustið 2009. Fyrirhugað er að kennt verði á Dalvík, Siglufirði og í Ólafsfirði, í samstarfi við aðra framhaldsskóla í Eyjafirði. Skólanefnd verður skipuð fljótlega og auglýst verður eftir skólameistara í byrjun árs 2010,“ segir á vef Fjallabyggðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert