Í samræmi við fjárreiðulög
Drög að samkomulagi sem liggja fyrir um kaup Austurhafnar á félögunum Portus og Situs í tengslum við áframhald framkvæmda við Tónlistarhúsið brjóta ekki gegn ákvæðum laga um fjárreiður ríkisins að mati menntamála- fjármálaráðuneyta.
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri, undirrituðu þann 19. febrúar viljayfirlýsingu um áframhald framkvæmda við Tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð við Austurhöfnina í Reykjavík. Samkvæmt samkomulaginu mun Austurhöfn-TR ehf., félag í eigu ríkis og borgar, taka yfir félögin Portus og Situs og þar með byggingu tónlistarhússins. Kaupverð félaganna, krafna á félögin, byggingarréttar og lóða verður lánað til sjö ára og greiðast hvorki afborganir né vextir á þeim tíma. Allar áætlanir miðast við að ekki þurfi að koma til aukin framlög ríkis og borgar frá því sem ákveðið var á árinu 2004 þegar framkvæmdir og rekstur tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar voru boðin út. Þess í stað munu innlendar lánastofnanir lána fé til kaupanna og framkvæmda við tónlistarhúsið gegn veði í eignum félaganna og samningsbundnu framlagi ríkis og borgar til Portusar.
Fulltrúar Ríkisendurskoðunar, fjármálaráðuneytis, menntamálaráðuneytis og Austurhafnar - TR ehf. komu á fund fjárlaganefndar í morgun til að fjalla um fjárskuldbindingar ríkisins í tengslum við byggingu tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar við Austurhöfn í Reykjavík.
Í minnisblaði Ríkisendurskoðunar kemur fram að með vísan til ákvæða fjárreiðulaga og annarra tilgreindra laga búi fullnægjandi lagaheimildir að baki skuldbindingum þeim sem ríkið gekkst undir með samningnum (Project Agreement) við Portus ehf. á sínum tíma.
Jafnframt telur Ríkisendurskoðun að veðsetning sú sem til umfjöllunar hefur verið feli ekki í sér viðbótarskuldbindingar fyrir ríkissjóð samkvæmt fyrirliggjandi samningum varðandi TR. Það er því mat Ríkisendurskoðunar, með vísan til þess sem fram kemur í minnisblaði stofnunarinnar, að framangreind veðsetning sé ekki í andstöðu við fjárreiðulögin.
|
|
Fylgiskjöl um tónlistar- og ráðstefnuhús |
Innlent »
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 17. mars 2009, Innlent Skylt að fjármagna Tónlistarhúsið
- Þriðjudagur, 3. mars 2009, Innlent Tekist á um Tónlistarhús
- Föstudagur, 22. maí 2009, Innlent Pétur J. Eiríksson nýr formaður stjórnar Portusar
- Miðvikudagur, 31. desember 2008, Innlent Húsið bíður óklárað
- Miðvikudagur, 15. október 2008, Innlent Leita leiða til yfirtöku Tónlistarhúss
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































