Leiðbeiningar um sálræna skyndihjálp gefnar út

Útgáfa klíniskra leiðbeininga  um sálræna skyndihjálp,  viðurkennt verklag á vettvangi, verða kynntar á blaðamannafundi í dag.     Leiðbeiningarnar hafa verið þýddar og staðfærðar af Dr. Berglindi Guðmundsdóttur, sálfræðingi og Þórunni Finnsdóttur,  sérfræðingi í klíniskri sálfræði.

Að blaðamannafundinum standa Landlæknisembættið, Landspítalinn,  Þjóðkirkjan,  Rauði kross Íslands og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Lengi hefur verið beðið eftir hagnýtum leiðbeiningum af þessu tagi og eru þær mikilvægt hjálpartæki fyrir þá sem sinna afleiðingum áfalla, að því er segir á vef lögreglunnar.  

Leiðbeiningarnar í heild

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert