Lýst eftir bifreið í tengslum við innbrot
Rétt fyrir klukkan þrjú í nótt, mánudag, barst lögreglu tilkynning um innbrot í sumarbústað við Klausturhólaveg í Grímsnesi. Eigendur yfirgáfu húsið um miðjan dag í gær en þegar fjölskyldumeðlimur kom aftur í bústaðinn í nótt sá hann að brotist hafði verið inn og búið að fjarlægja flatskjá, hljómflutningstæki og kaffikönnu. Lögreglumenn sáu að einnig hafði verið brotist í bústað skammt frá. Úr þeim bústað var stolið vasaljósi.
Vegfarandi hafði samband við lögreglu í morgun og lét vita að um kl. 21:00 í gær hafi hann séð hvíta fólksbifreið, líklega Mitshubishi Lancer, í götunni sem bústaðirnir standa við. Bifreiðin var þar án ljósa en þrír menn í henni. Lögreglan á Selfossi biður alla þá sem hafa orðið vara við bifreið sem þessi lýsing passar við eða öðrum upplýsingum sem varðandi þetta mál að hafa samband í síma 480 1010.
Í síðustu viku bárust tilkynningar um 15 önnur innbrot í Árnessýslu. Brotist var inn í gróðrarstöðina Engi í Laugarási og þaðan stolið 18 gróðurhúsalömpum. Þrjú fyrirtæki í Gagnheiði á Selfossi urðu fyrir barðinu á innbrotsþjófum. Innbrot í þrjú ökutæki í Hveragerði voru tilkynnt og annað var í sumarbústaði í Grímsnesi og í Bláskógabyggð.
Í tengslum við þessi innbrot var farið í fimm húsleitir á föstudag hjá fólki sem talið er að tengist innbrotum á Suðurlandi að undanförnu. Ekkert fannst í þessum húsleitum sem hægt var að tengja við þessi innbrot.
Lögreglan biður fólk sem verður vart við grunsamleg ökutæki og menn á ferðinni að hafa strax samband við lögregluna á Selfossi en hún hefur í nokkrum tilvikum að undanförnu, í kjölfar hringinga frá fólki sem lét vita af ferðum grunsamlegra manna, náð til þjófa sem voru á leið úr innbrotum með þýfi.
Í gærkvöldi voru tveir menn handteknir vegna gruns um ölvunarakstur við Fossheiði á Selfossi. Lögreglu barst tilkynning um bifreið sem væri ekið og spólað á grasbletti á milli Fossheiðar og Háengis. Þegar lögreglumenn komu á staðinn var bifreiðin mannlaus en hinir grunuðu skammt frá. Mennirnir voru færðir í fangaklefa og þeir yfirheyrðir þegar áfengisvíman var runnin af þeim.
Fangaverðir á Litla Hrauni komu í liðinni viku í veg fyrir smygl á fíkniefnum inn í fangelsið. Fíkniefnin fundu fangaverðir í tölvuflakkara sem ætlaður var fanga. Þarna var um að ræða um 20 grömm af amfetamíni, 30 E- töflur og smávegis af kannabis. Þrír fangar eru grunaðir um aðild að málinu. Þeir voru yfirheyrðir. Tveir menn voru handteknir grunaðir um að hafa komið efnunum inn í fangelsið og þess þriðja er leitað. Málið er í rannsókn, samkvæmt dagbók lögreglunnar á Selfossi.



































