Niðurskurður í menntakerfi vanhugsaður

Félag framhaldsskólakennara hvetur stjórnvöld til að standa gegn niðurskurði í menntakerfinu og höggva ekki þar sem hlífa skyldi. Félagið segir vanhugsaðar ákvarðanir um mikinn sparnað í skólakerfinu geta valdið óbætanlegum skaða  um mörg ókomin ár.

Í ályktun fulltrúafundar Félags framhaldsskólakennara segir að á krepputímum sé mikilvægt að efla fremur en draga úr jafnrétti til náms. Ef starfsemi og þjónusta leik- og  grunnskóla við börn og unglinga og fjölskyldur þeirra er skert vegna fjárhagslegs niðurskurðar sé höggvið þar sem hlífa skyldi. Slíkur niðurskurður bitni oftast þyngst á þeim  sem síst mega við því, efnahagslega og félagslega.

„Framhaldsskólarnir eru í lykilaðstöðu til að opna dyr sínar fyrir því fólki á öllum aldri, sem vill bæta menntun sína til að fá aðgang að frekara námi og styrkja hæfni sína og stöðu á vinnumarkaði. Þetta er því aðeins fært að skólarnir fái rekstrarfé til að halda uppi nægilega mikilli og fjölbreyttri starfsemi. Fjármunum til menntunar er vel varið, hvort sem vel árar eða illa. Samfélagið þarf alltaf á mannauði og menningu skólanna að halda.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert