„Þungu fargi af mér létt“
„Það er þungu fargi af mér létt, því er ekki að neita. Þetta hefur tekið á, það er niðurdrepandi að sitja undir svona ásökunum. Þá hefur þetta óneitanlega haft áhrif á störf mín sem hæstaréttarlögmanns. Það segir sig sjálft að fólk hugsar sig tvisvar um áður en það fær mann sem sætir opinberri ákæru til að gæta hagsmuna sinna,“ segir Karl Georg Sigurbjörnsson. Héraðsdómur sýknaði hann í dag af ákæru um fjársvik með því að hafa sem milligöngumaður um sölu, gefið fimm eigendum stofnfjárbréfa í Sparisjóði Hafnarfjarðar ranga hugmynd um verðmæti bréfanna.
Karl Georg segir að það sem mestu skipti í þessu máli sé að Sigurður Þórðarson, sem kom fram fyrir sína hönd og fjögurra annarra seljenda stofnfjárbréfa í Sparisjóði Hafnarfjarðar, hafi fyrir löngu verið búinn að semja um verð fyrir bréfin, áður en hann kom til Karls Georgs. Það hafi með öðrum orðum verið kominn á samningur um sölu stofnbréfanna áður en Karli var falið að ganga formlega frá sölunni.
„Ég var því aldrei í neinni stöðu til að blekkja, eins og haldið var fram í ákærunni,“ segir Karl Georg Sigurbjörnsson.
Í ákærunni var Karli gefið að sök að hafa, í tengslum við milligöngu sína sem lögmaður, styrkt og hagnýtt sér ranga hugmynd Sigurðar Þórðarsonar, sem annaðist samskipti við hann fyrir sína hönd og fjögurra annarra eigenda stofnfjárbréfa, um að það hámarksverð sem kaupendur bréfanna væru tilbúnir að greiða seljendum fyrir hvert stofnfjárbréf væri 25 milljónir.
Ákvað ekki verðið
Í niðurstöðu dóms Arngríms Ísberg segir að Karl Georg og Sigurður G. Guðjónsson hrl. hafi verið ráðnir til tiltekinna starfa sem lögmenn. Fyrst í tengslum við aðalfund Sparisjóðs Hafnarfjarðar í apríl 2005 og síðar til að annast milligöngu um sölu stofnfjárbréfanna fyrir A. Holding.
Þá segir í niðurstöðunni að dómurinn telji sannað að Karl Georg hafi ekki ákveðið verðið sem eigendum bréfanna bauðst fyrir þau heldur hafi það verið ákveðið af öðrum og Karl Georg hafi ekki haft leyfi umbjóðanda síns til að bjóða annað en framangreint verð fyrir þau. Þá segir að á sama hátt sé sannað að Karl Georg hafði hvorki leyfi til að selja þau við öðru verði en A. Holding hafði ákveðið né til annarra en þeirra sem það ákvað að selja þau til. Hlutverk Karls Georgs í þessum viðskiptum hafi því eingöngu verið, sem lögmanns, að vera milligöngumaður um viðskipti þar sem aðrir en hann höfðu ákveðið verð og önnur kjör í viðskiptunum.
„Samkvæmt þessu er ekki hægt að fallast á það með ákæruvaldinu að ákærði hafi styrkt og hagnýtt sér ranga hugmynd Sigurðar Þórðarsonar með því að hafa milligöngu um kaup á stofnfjárbréfum hans og félaga hans á framangreindu verði. Hvort þeir hefðu getað selt þau öðrum fyrir annað verð er úrlausn þessa máls óviðkomandi, enda ósannað að ákærði hafi, í starfi sínu sem lögmaður A. Holding, mátt eða getað haft milligöngu um kaup á öðru verði en félagið hafði ákveðið. Ákærði verður því sýknaður af kröfu ákæruvaldsins,“ segir í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur.
Áfrýjun líkleg
Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota sagði í samtali við mbl.is að hann færi að líkindum fram á að niðurstöðunni yrði áfrýjað til Hæstaréttar.
Karl Georg segist ekki kvíða áfrýjun en hann sjái ekki að Hæstiréttur ætti að komast að annarri niðurstöðu en héraðsdómur. Karl segir að málið hafi verið rekið með miklu offorsi og hann velti fyrir sér hvað hafi ráðið því. Þá hafi bæði rannsókn og rekstur málsins fyrir dómstólsins, vakið upp ýmsar spurningar um hvort rannsakendur og ákæruvaldið hafi virkilega viljað draga fram hið sanna í málinu eða hvort önnur sjónarmið hafi legið að baki málatilbúnaðinum.



































