Fimm lífeyrissjóðir í rannsókn

stækka

mbl.is/Golli

Fjármálaeftirlitið hefur vísað málum fimm lífeyrissjóða sem eru í rekstri og eignastýringu Landsbankans til rannsóknar sérstaks saksóknara sem í dag hóf opinbera rannsókn á meintum brotum.

Stjórnum og framkvæmdastjórum lífeyrissjóðanna hefur tímabundið verið vikið frá störfum og hefur fjármálaráðherra hefur skipað umsjónaraðila með sjóðunum.

Í tilkynningu fjármálaráðuneytisins segir að ráðuneytið hafi að tillögu Fjármálaeftirlitsins skipað Íslenska lífeyrissjóðnum, Lífeyrissjóði Eimskipafélags Íslands, Lífeyrissjóði Tannlæknafélags Íslands, Eftirlaunasjóði FÍA og Kili lífeyrissjóði umsjónaraðila samkvæmt ákvæðum laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Þessir lífeyrissjóðir eru í rekstri og eignastýringu Landsbankans.

Tillögur Fjármálaeftirlitsins um skipan umsjónaraðila eru fram komnar í kjölfar rannsóknar eftirlitsins á því hvort viðkomandi sjóðir hafi gerst brotlegir við lög varðandi starfsemi á árinu 2008. Fjármálaeftirlitið hefur vísað málinu til frekari rannsóknar sérstaks saksóknara sem í dag hóf opinbera rannsókn á hinum meintu brotum.

Umsjónaraðili Íslenska lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs Eimskipafélags Íslands frá og með 17. mars 2009 er Lára V. Júlíusdóttir hrl.

Umsjónaraðili Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands, Eftirlaunasjóðs FÍA og Kjalar lífeyrissjóðs frá og með 17. mars 2009 er Viðar Lúðvíksson hrl.

Umsjónaraðilar taka við réttindum og skyldum stjórnar og framkvæmdastjóra eftir því sem nánar er kveðið á um í erindisbréfum þeirra. Erindisbréfin gilda til 1. júlí 2009 og skulu umsjónaraðilar þá hafa lagt fram tillögur um framtíð sjóðanna fyrir fjármálaráðherra.

Vakin er athygli á því að daglegur rekstur lífeyrissjóðanna helst óbreyttur og mun hagsmuna sjóðfélaga verða gætt í hvívetna. Á næstu dögum verður sjóðfélögum umræddra lífeyrissjóða sent bréf með frekari upplýsingum um stöðu mála og næstu skref.

Áréttað skal að þau meintu brot sem hér um ræðir varða starfsemi umræddra lífeyrissjóða.

Ekki á ábyrgð Nýja Landsbankans

Í tilkynningu frá Nýja Landsbankanum segir að tilgangur rannsóknarinnar sé að að kanna hvort lífeyrissjóðirnis hafi á fyrri hluta árs 2008 farið út fyrir lagaramma um fjárfestingarákvarðanir og hvort upplýsingagjöf þar að lútandi hafi verið ábótavant. Þá segir að Landsbankinn muni tryggja gott samstarf við embættið og vonast er til að niðurstaða fáist í málið sem fyrst.

Þá er áréttað að þau meintu brot sem hér um ræðir varða starfsemi umræddra lífeyrissjóða á árinu 2008 og eru því á engan hátt á ábyrgð yfirstjórnar Nýja Landsbankans.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir og eiginmaður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.

Sé ekki í samkeppni við þingið

18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem er að vera sameiningarafl. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

17:46 Bíll skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Héraðsdómur Suðurlands.
16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í héraðsdómi Suðurlands fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Málningar- og viðhaldsvinna
Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. T...
NOTAÐ&NÝTT
NOTAÐ&NÝTT er ný verslun á Skemmuvegi 6 á bak við Byko. Mikið úrval af fallegum ...
Þæg hross
Er með nokkra þæga hesta til sölu sem rúlla töltið, einnig nokkur trippi uppl. s...
ALLT MILLI HIMINS OG JARÐAR !!!!!!!!!!
NOTAÐ&NÝTT er ný verslun á Skemmuvegi 6 á bak við BYKO. Mikið úrval af fallegum ...
 
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...