Styrkja starfsumhverfi frístundabáta
Sjávarútvegsráðherra fær heimild til að leyfa takmarkaðar veiðar í fræðsluskyni, samkvæmt frumvarpi sem sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd lagði fram á Alþingi í dag. Þá verða settar ítarlegar reglur um frístundaveiðar sem fara fram á vegum ferðaþjónustuaðila.
Frístundaveiðar við Ísland er nýr vaxandi þáttur í ferðaþjónustu hér við land en veiðar á frístundafiskibátum eins og þekkjast í dag hófust að marki á Vestfjörðum árið 2006. Þessar veiðar hafa bæði verið stundaðar á venjulegum fiskibátum sem í annan tíma stunda veiðar í atvinnuskyni og sérstökum frístundabátum sem hafa verið smíðaðir sérstaklega í þessum tilgangi.
Í samstarfi samgönguráðuneytisins og sjávarútvegsráðuneytisins og stofnana ráðuneytanna varð til skilgreining á fiskibátum til þessara nota og eru þeir skráðir sem slíkir. Frístundafiskibátur er að jafnaði minni og meðfærilegri en almennir handfærabátar og allur búnaður bátsins við það miðaður að þeir sem nota bátinn séu aðilar sem hafa ekki langa viðdvöl um borð í bátnum. Ekki var þó í neinu slakað á öryggiskröfum við smíðina enda bátarnir smíðaðir samkvæmt þeim kröfum og reglum sem almennt gilda um smíði íslenskra fiskiskipa.
Heildarveiði þessara báta var um 200 tonn árið 2007 og var þorskafli þar af um 180 tonn. Árið 2008 var heildaraflinn um 250 tonn og var þorskafli þar af um 220 tonn. Fjöldi skráðra frístundabáta er nú 43 en ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um fjölda annarra báta sem selja ferðir í sjóstangaveiði.
Samkvæmt frumvarpi sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar verður heimilt, án sérstaks leyfis, að stunda fiskveiðar í frístundum til eigin neyslu. Slíkar veiðar má stunda með sjóstöng og handfærum án sjálfvirknibúnaðar en samkvæmt gildandi lögum er einungis heimilt að stunda veiðarnar með handfærum. Afla sem veiddur er samkvæmt þessu ákvæði er einungis heimilt að hafa til eigin neyslu og er óheimilt að selja eða fénýta hann á annan hátt. Þá verður sjávarútvegsráðherra heimilt að ákveða árlega að á tilteknum fjölda opinberra sjóstangaveiðimóta teljist afli ekki til aflamarks eða krókaaflamarks, enda sé aflinn einungis fénýttur til að standa straum af kostnaði við mótshaldið.
Innlent »
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 10. nóvember 2009, Innlent Dregið úr heimildum um flutning aflamarks
- Föstudagur, 20. nóvember 2009, Innlent 130.000 tonn af makríl 2010
- Mánudagur, 9. febrúar 2009, Innlent Gefur út rannsóknarkvóta í loðnu
- Laugardagur, 11. júlí 2009, Innlent Slæm tíðindi fyrir smábátasjómenn
- Laugardagur, 27. júní 2009, Innlent Mega veiða sjö fiska
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































