1.300 bankamönnum sagt upp

Alls hefur 25% starfsmanna fjármálafyrirtækja verið sagt upp stækka

Alls hefur 25% starfsmanna fjármálafyrirtækja verið sagt upp Ásdís Ásgeirsdóttir

mbl.is Eftir Guðrúnu Hálfdánardóttur guna@mbl.is

Friðbert Traustason, framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, segir að frá því í apríl í fyrra hafi ríflega 1.300 starfsmönnum fjármálafyrirtækja verið sagt upp störfum. Þetta samsvari 25% fækkun í greininni. Straumur hefur tilkynnt um uppsögn 90 af 110 starfsmönnum bankans á Íslandi.

Friðbert segir að í morgun hafi verið tilkynnt um uppsögn 45 starfsmanna Straums á Íslandi frá og með 31. mars og 45 til viðbótar verður sagt upp í  vor eða sumar en nákvæmari tímasetning liggur ekki fyrir að svo stöddu.

Útlit fyrir mikinn landflótta

Að sögn Friðberts vill svo til, að á sama tíma og stjórnvöld tali um að menntun skipti öllu og mikilvægt sé að fólk mennti sig, þá er stærsti hluti þeirra 1.300 sem hefur verið sagt upp hámenntað fólk. Með allt frá BA-gráðum upp í doktorsmenntun. Þetta fólk komi úr öllum greinum, ekki einungis fjármálafræðum. Þetta er hámenntað fólk á öllum sviðum og flestir eru á aldrinum 25 til 40 ára, segir Friðbert. 

„Það er hálfpartinn verið að hrekja stóran hluta þessa fólks úr landi," segir Friðbert en að hluti þessa fólks, um það bil þriðjungur, hafi hellt sér út í framhaldsnám. Síðan hefur einhver hluti þeirra, sem betur fer, stofnað eigin rekstur, segir Friðbert.

Hann segir að stór hluti hópsins sem hefur verið sagt upp sé farinn úr landi eða er að huga að því að flytja af landi brott.  „Eina sem ríkisstjórnin hugsar um er að leggja vegi, bora göng eða byggja álver. Þetta er kannski ekki hópurinn sem fer að vinna þar. Þannig að manni finnst að við séum að falla í sömu gryfju og Finnar féllu í á fyrstu tveimur þremur árunum eftir að kreppan skall þar á."

Telur að staðið verði við greiðslu launa

Hann telur nær að leggja meiri áherslu á nýsköpun og að kraftar þessa fólks verði nýttir þar. 

Friðbert segist hafa rætt við skilanefnd Straums en bankinn er enn í höndum skilanefndar þar sem hann er ekk kominn í greiðslustöðvun þrátt fyrir að beiðni um slíkt hafi verið lögð fram í morgun. Skilanefndin hafi fullvissað hann um að það verði að fullu staðið við gerða samninga við starfsfólk Straums. 

Hann segir að það hafi verið gert þegar ríkið tók yfir bankana þrjá í október. „Hins vegar stendur eftir deila um forgangskröfur þegar menn hafa átt inni einhvers konar árangurstengingu. Þar eru menn ekki alveg sammála um hvort það falli undir forgangskröfur líkt og gildir um umsamin laun samkvæmt samningi."

Friðbert er ekki bjartsýnn á horfurnar á fjármálamarkaði hvað varðar framtíð starfsfólks í þeim geira. Nú þegar hafi starfsmönnum SPRON verið fækkað um eitt hundrað og sameiningar í farvatninu hjá sparisjóðum.

Leiðrétting sett inn klukkan 14:25

Ekki hefur verið að fullu gengið frá samningum við starfsmenn Landsbankans sem misstu vinnuna og eins við þá sem voru endurráðnir til nýja bankans, NIB. Hins vegar hefur verið að fullu gengið frá samningum við starfsmenn Glitnis og Kaupþing. 


Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA, og Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja og. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra

Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA, og Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja og. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra Golli / Kjartan Þorbjörnsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Honda 100 F
Til sölu HONDA 100 F torfæruhjól 2004 mjög lítið notað fjórgeingisvél. Fyrir ald...
HairOff háreyðingavörur; sársaukalaus og örugg háreyðing !
HairOff vörurnar fjarlægja hár á einfaldan, öruggan og sársaukalausan hátt ! Got...
EINBÝLISHÚS ÖLFUSI
EINBÝLISHÚS ÖLFUSI Til sölu 170 fm einbýli. Hús 120 ...
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
Nicolai bifreiðastillingar, Faxafeni 12 Sími 588-2455. Véla og hjólastillingar. ...
 
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...