HB Grandi hækkar laun starfsmanna

HB Grandi á Akranesi. stækka

HB Grandi á Akranesi.

HB Grandi hefur ákveðið að greiða starfsfólki fyrirtækisins þær launahækkanir sem samið hafði verið um að tækju gildi 1. mars áður en aðilar vinnumarkaðarins komu sér saman um að fresta þeim. Ákvörðunin hefur þegar verið kynnt starfsfólki fyrirtækisins.

HB Grandi er í Samtökum atvinnulífsins og þar með sjálfkrafa aðili að samningnum um áðurnefnda frestun. Efling-stéttarfélag skoraði nýverið á fyrirtækið, í ljósi afkomu þess, að greiða áður umsamdar hækkanir. HB Grandi hefur í dag á fundi með formanni og skrifstofustjóra Eflingar-stéttarfélags og framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins svarað erindinu jákvætt. Ákvörðunin nær til allra starfsmanna fyrirtækisins sem frestunin náði yfir, annarra en æðstu stjórnenda þess og gildir frá 1. mars.

„HB Grandi hefur undanfarið lagt í umtalsverðar fjárfestingar til þess að styrkja stoðir félagsins og er m.a. að reisa nýja fiskmjölsverksmiðju á Vopnafirði. Slíkar framkvæmdir eru fjármagnsfrekar og fyrirtækjum því nauðsynlegt að greiða hluthöfum a.m.k. lágmarksarð til þess að halda eigin fé inni í fyrirtækjunum og koma í veg fyrir of mikla skuldsetningu.

Stjórnendur HB Granda harma þá neikvæðu umræðu, sem verið hefur um fyrirtækið undanfarna daga enda hafa þeir kappkostað að eiga góð samskipti við starfsfólk félagsins og verkalýðsforystuna. Það er von þeirra að þessi ákvörðun skapi frið um rekstur fyrirtækisins sem er mikilvægur fyrir starfsfólkið og þjóðarbúið í heild," að því er segir í tilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir og eiginmaður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.

Sé ekki í samkeppni við þingið

18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem er að vera sameiningarafl. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

17:46 Bíll skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Héraðsdómur Suðurlands.
16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í héraðsdómi Suðurlands fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HARÐVIÐUR TIL HÚSBYGGINGA
Harðviður til húsabygginga  Sjá nánar á...
HairOff háreyðingavörur; sársaukalaus og örugg háreyðing !
HairOff vörurnar fjarlægja hár á einfaldan, öruggan og sársaukalausan hátt ! Got...
Gaseldavél í sumarbústaðinn
Til sölu gaseldavél með þremur hellum og bakarofni ásamt litlum gaskút. Upplýsi...
JEEP GRAND CHEROKEE
Jeep Grand Cherokee Overland 4.7 , 06/2004, ekinn 139 þús. Ssk., le...
 
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...