Áskilja sér rétt til bóta frá ríkinu
Vestmannaeyjabær krefst þess að tafarlaust verði veitt heimild til að hefja á ný, hreinsun sýktrar síldar úr Vestmannaeyjahöfn. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið stöðvaði hreinsunina á föstudag og bar við fiskifræðilegum rökum. Vestmannaeyingar telja verulega hættu á umhverfisslysi ef hreinsun verður ekki heimiluð á ný og áskilja sér allan rétt til að krefja ríkið um greiðslu vegna þess kostnaðar sem verður af hreinsun vegna þess umhverfisslyss sem Eyjamenn segja líkur eru fyrir.
Með erindi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins dagsettu 20. mars var Vestmannaeyjahöfn fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar tilkynnt um ákvörðun um að hreinsun sýktrar síldar í Vestmannaeyjahöfn skyldi stöðvuð. Ákvörðunin var rökstudd með vísan til bréfs Hafrannsóknarstofnunar sem einnig er dagsett 20. mars. Í því bréfi kemur fram að sýkingarhlutfall í þeirri síld sem veiddist í Vestmannaeyjahöfn þann 18. mars sé hátt eða á bilinu 70% til 76%. Í bréfinu segir ennfremur að ljóst sé að rúmlega fjórðungur síldarinnar (27%) sé ósýktur og mikilvægt er að vernda þann hluta, enda muni sú síld sem nú er ósýkt verða uppistaða í veiði og hrygningarstofni á komandi árum. Því þóttu ekki til staðar haldbær fiskifræðileg rök fyrir því að halda áfram hreinsun hafnarinnar.
Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum eru ósátt við ákvörðunina og telja ekki réttlætanlegt að eingöngu sé miðað við fiskifræðileg rök þegar ákvörðun er tekin um hreinsun á Vestmannaeyjahöfn. Öllum sem að málinu koma megi ljóst vera að viðkomandi hreinsun hafi ekki verið unnin á þeim forsendum.
„Hreinsunin er unnin út frá umhverfislegum sjónarmiðum fyrst og fremst. Þeir sem til þekkja vita að höfnin hér í Vestmannaeyjum er algerlega einstök hvað varðar landfræðilegar aðstæður. Hún er trektlöguð og mjög lokuð af. Reyndir sjómenn, sjávarlíffræðingar og fiskifræðingar sem Vestmannaeyjabær hefur leitað til telja að ekki séu miklar líkur til þess að síldin yfirgefi höfnina úr því sem komið er. Umhverfisslys er því yfirvofandi,“ segir í bréfi bæjarstjórnar Vestmannaeyja til sjávarútvegsráðherra.
Þá segir ennfremur að Vestmannaeyjabær hafi skilning á því að varlega þurfi að fara við mat á hreinsun sem þessari en bæjaryfirvöld mótmæla því að þau 27% sem eru ósýkt í síldinni í Vestmannaeyjahöfn verði uppistaða í veiði og hrygningarstofni á komandi árum.
Sjálfboðaliðar hafa séð um hreinsun í höfninni og óttast bæjaryfirvöld að ef ekki verður ráðist í hreinsun á þeim forsendum sem þegar voru hafnar muni Eyjamenn sitja uppi með mikið mengunartjón þegar síldin drepst og rotnunin hefst.
„Vestmannaeyjabær bendir á að Vestmannaeyjahöfn er lífæð samfélagsins í Eyjum. Þar standa matvælafyrirtæki, ferðaþjónustufyrirtæki og fleiri fyrirtæki sem verða fyrir miklum beinum og óbeinum skaða ef til umhverfisslyss kemur í höfninni auk þeirra almennu óþæginda sem íbúar og gestir verða fyrir vegna lyktmengunar ef illa fer. Vestmannaeyjabær krefst þess því hér með að Vestmannaeyjahöfn verði tafarlaust veitt heimild til að hefja hreinsun á ný. Verði ekki orðið við því áskilur Vestmannaeyjabær sé allan rétt til að krefja ríkið um greiðslu vegna þess kostnaðar sem verður af hreinsun vegna þess umhverfisslyss sem líkur eru fyrir,“ segir í bréfi sem Elliði Vignisson, bæjarstjóri sendi Steingrími J. Sigfússyni sjávarútvegsráðherra.







































