Söluverð nægir oftast fyrir kröfu
eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is
Leiguhlíð, fasteignafélag Frjálsa fjárfestingarbankans (FF), kaupir eignir sem bankinn hefur leyst til sín á uppboði, á því verði sem krafa bankans stendur í eða á markaðsverði sé það lægra, að sögn Kristins Bjarnasonar framkvæmdastjóra.
Þegar banki eignast fasteign á uppboði, sem hann á veð í, gengur andvirði eignarinnar upp í kröfu bankans á húseigandann. Yfirleitt er uppboðsverðið töluvert undir markaðsvirði sem oft á tíðum þýðir að það gangi aðeins upp í hluta kröfunnar. Selji bankinn eignina þriðja aðila á hærra verði en uppboðsverðið var á milligjöfin einnig að ganga upp í kröfuna. Þannig er tryggt að skuld húseigandans við bankann lágmarkist.
Eftir að Morgunblaðið greindi frá því að FF selji húseignir sem bankinn hefur leyst til sín á uppboðum, til leigufélagsins Leiguhlíðar sem einnig er í eigu bankans, hafa menn viðrað áhyggjur af því að það sé gert á lægra verði en eignirnar hefðu annars farið á. Þannig gæti lántakandinn setið eftir með hærri skuld en ella. Kristinn vísar þessu á bug. „Eignin fer annaðhvort á því verði sem krafa bankans stendur í eða á markaðsverði ef það er lægra,“ segir hann. „Þetta er hugsað eins og ef við værum að selja þriðja aðila. Viðskiptavinurinn fer eins vel út úr þessu og mögulegt er.“
Aðspurður segir hann bankann meta markaðsverðið en lántakandinn geti gert athugasemdir við það mat. „Viðkomandi á alltaf rétt á að koma með verðmat annars staðar frá og ef það væri ágreiningur fengjum við óháðan aðila til að verðmeta eignina. Í flestum tilfellum dugar þó eignaverðið því við erum yfirleitt með lán á fyrsta veðrétt.“
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 19. mars 2009, Innlent Banki í fasteignaviðskiptum?
- Þriðjudagur, 30. júní 2009, Innlent Lánshlutfallið gæti hugsanlega lækkað
- Fimmtudagur, 14. janúar 2010, Innlent Stjórn Straums sýknuð
- Miðvikudagur, 8. júlí 2009, Innlent Öryggi starfsmanna ógnað
- Mánudagur, 4. janúar 2010, Innlent Landsbankinn boðar aðgerðir
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































