Fjárlögin aðalmálið
Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is
Íslensk stjórnvöld og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) vinna nú að því hörðum höndum að afla upplýsinga og vinna úr þeim til að draga upp rétta mynd af stöðu efnahagsmála hér á landi. Seinnipart vikunnar munu íslensk stjórnvöld senda gögn til IMF er varða stöðu ríkissjóðs og vinnu fyrir fjárlög næsta árs. Er þetta hluti af gagnaöflun fyrir skýrslugerð IMF sem lögð verður fyrir stjórn hans er varðar stöðu Íslands.
„Samvinnan við sjóðinn hefur gengið vel. Það er unnið að því hörðum höndum að draga upp rétta mynd af stöðu ríkisfjármála sem er þó óvissu háð. Meðal annars vegna þess að ekki hefur verið samið um vexti á öllum lánum og þá liggur ekki fyrir enn hvernig takast mun að selja eignir upp í skuldir, m.a. vegna Icesave-reikninganna. Þetta er allt í ferli sem reynt er að hraða eins og kostur er,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í samtali við Morgunblaðið.
Samkvæmt upplýsingum frá Angelu Gaviriu, talskonu IMF, liggur ekki fyrir hvenær stjórn sjóðsins getur afgreitt skýrslu um stöðuna á Íslandi sem starfsmenn sjóðsins vinna nú að því að klára. Þegar stjórnin hefur ályktað um stöðu Íslands verða næstu skref ákveðin, og þá hvort þörf er á því að endurskoða efnahagsáætlunina sem unnið er eftir. Eftir þetta ferli getur IMF afgreitt lán til íslenskra stjórnvalda, sem í heild er áætlað að nemi um 2,1 milljarði dala.
Allt kapp er nú lagt á að flýta mati á eignum og skuldum gömlu og nýju bankanna, svo hægt sé að birta efnahagsreikning þeirra og leggja þeim til eigið fé. Gert var ráð fyrir því að bankarnir þyrftu um 385 milljarða innspýtingu frá ríkinu. Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra hefur upplýst að sú upphæð verði að líkindum umtalsvert lægri.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 26. febrúar 2009, Innlent Afla upplýsinga um stöðuna
- Þriðjudagur, 14. október 2008, Innlent IMF tilbúinn að hjálpa Íslandi
- Fimmtudagur, 26. febrúar 2009, Innlent Góðir fundir með IMF
- Sunnudagur, 12. október 2008, Innlent Brýnt að leita eftir aðstoð IMF
- Föstudagur, 19. desember 2008, Innlent Þörf umræða um gjaldmiðil
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































